15.02.1951
Neðri deild: 69. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (3612)

181. mál, hafnarframkvæmdir í Rifi

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég ætla mér ekki að tefja fyrir þessu máli með langri ræðu, en ég vil leyfa mér að bera fram tvær fyrirspurnir til hv. flm. þessa frv.

Þó að í grg. þessa frv. séu tekin fram mörg veigamikil atriði, eins og t. d. það, hvernig veðurfar var í Rifi, þegar fjvn. kom þangað í heimsókn á s. l. ári, þá finnst mér, að þetta mál liggi ekki alls kostar ljóst fyrir, og virðist mér það svo þrátt fyrir framsöguræðu flm. Þó að frv. sé ekki langt, þá virðist mér, að það hafi nýmæli að geyma. Það mun vera nýmæli, að ríkisstj. sjálf taki lán til hafnarframkvæmda; hitt er algengara, að hafnarsjóðirnir taki lánin, en fái ríkisábyrgð. Þá er svo fyrir mælt í hinum almennu hafnarl. um hafnargerðir, að hlutaðeigandi sveitarstjórn hafi á hendi stjórn hafnarmálefna, en feli framkvæmdina 3–5 manna n., sem kosin er heima í hreppnum. En í l. um landshöfn, sem gilda um Keflavík og Njarðvíkur, er yfirstjórn hafnarinnar komið fyrir með þeim hætti, að form. hafnarnefndar er skipaður af ráðh., en 3 kosnir af sameinuðu Alþingi og einn kosinn af bæjarstjórnum þeirra hreppa, sem að höfninni liggja. Í 2. lið 1. gr. þessa frv. er það nýmæli, að þar er lagt til, að ríkisstj. sjálf skipi 5 manna hafnarnefnd. Árið 1046 voru sett l. um hafnargerðir í landinu, og í 1. gr. þeirra l. er kveðið svo á, að hafnir skuli reisa á þeim stöðum, sem taldir eru upp í þessum l. Nú hef ég við lauslega athugun ekki komið auga á það, að hafnarinnar í Rifi sé getið í þessum almennu hafnarl., og þess vegna vildi ég leyfa mér að bera fram þá fyrirspurn, eftir hvaða löggjöf er fyrirhugað að fara um framkvæmd og rekstur hafnarinnar í Rifi.

Í hinum almennu hafnarl. er það ákveðið, að ríkissjóður leggi fram 2/5 hluta af kostnaði við hafnargerðina en hafnarsjóðirnir 3/5, og hefur ríkisstj. heimild til að ábyrgjast lán, sem hafnarsjóðirnir taka að sínum hluta. Nú vildi ég í öðru lagi bera fram þá fyrirspurn til hv. flm., hvort það lán, sem ríkisstj. tekur samkvæmt þessu frv., ef að l. verður, á að ganga til þess að greiða hluta ríkissjóðs af kostnaði við hafnargerðina eins og hann er ákveðinn í hinum almennu hafnarl.