19.02.1951
Neðri deild: 71. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (3625)
183. mál, lax- og silungsveiði
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég get nú tekið undir það með hæstv. landbrh., að það sé kannske nokkuð vafasamt, hvort þetta frv., eins og það er, tryggi nokkuð betur rétt bænda, sem eiga afréttarlönd, til þess að hafa þar eftirlit með veiði heldur en lögin gera eins og þau nú eru. En á því væri þó mikil þörf, því að í mörgum tilfellum er það svo, að alls konar menn stunda veiðiþjófnað uppi á afréttum og það í mjög stórum stíl, menn, sem koma þangað úr fjarlægum héruðum og fjarlægum bæjum. Er mjög erfitt að hafa nokkurt eftirlit gagnvart þessu, og mundi ekki heldur vera þægilegt, þó að þetta frv. væri samþ. — En það eru ekki þessir hlutir, sem gerðu það að verkum, að ég stóð upp við þessa umr., heldur hitt, að ég vildi taka það fram, sem mér hefur lengi verið ljóst, að þessi lög um lax- og silungsveiði eru á margan hátt meingölluð lög og hafa valdið óhemju þrætum víðs vegar um land, og ekki sízt þau atriði, sem hæstv. ráðh. minntist hér á. Ég álít þess vegna, að mikil þörf væri á því, að undirbúningur væri látinn fram fara fyrir næsta Alþ. um rækilega endurskoðun á þessum l. Ég skal til dæmis taka eitt atriði nokkuð áberandi í sambandi við veiðifélögin, stofnun þeirra og starfsemi, sem er það, að samkv. þessum lögum, sem nú gilda, er það þannig, að veiðieigandi, sem á kannske frá 30% og upp í 50% af allri veiðinni vegna þess, hvernig hans land liggur, hann hefur ekkert meiri rétt í sambandi við veiðifélögin en maður, sem býr á hálfu koti einhvers staðar frammi í afdal og á kannske 1% eða minna af veiði þeirri, sem tilheyrir viðkomandi veiðisvæði. Þetta er svo ósanngjarnt, að illa er við unandi. Og svo er um fleiri atriði í þessu sambandi. Þess vegna hygg ég, að á því sé mjög mikil þörf, að hæstv. ríkisstj. láti endurskoða þessi lög og leggi um það frv. fyrir næsta reglulegt Alþ., hvernig þeim skyldi breytt.
Ég fyrir mitt leyti geri frekar lítið úr því, hvort þetta frv., sem hér liggur fyrir, nær nú samþykki eða ekki. Það er kannske heldur til bóta en hitt, en hefur annars ekki mjög mikla þýðingu, því að það held ég að engum blandist hugur um, að þar, sem svo hagar til um afréttir, eins og víðast er á landinu, að upprekstrarfélög eiga þær, þá eigi þeir einir rétt til veiði í vötnum í þeirri afrétt, sem þeirra upprekstrarfélag hefur. — Ég hafði nú lítillega minnzt á þetta við hæstv. landbrh., en hann varð að fara frá. En ég vildi, að þetta væri undirbúið fyrir næsta Alþ., því að það er um svo mörg vafaatriði að ræða í laxveiðilöggjöfinni, að hún er búin að standa allt of lengi eins og hún er.