25.01.1951
Efri deild: 55. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (3651)

30. mál, iðnaðarmálastjóri

Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Ég mun ekki leggja mig niður við að svara mörgum atriðum, sem fram komu í ræðu hv. flm. þessa frv. margt af því voru slíkar firrur og endileysur, að þær eru ekki svaraverðar. Að einstökum atriðum vildi ég þó víkja. — Ég benti á í gær, að af 3 aðalatvinnuvegum þjóðarinnar, þ. e. a. s. landbúnaði, fiskveiðum og iðnaði, sé hinn síðast nefndi talinn vera hornreka. Og ég benti á, að allar iðnaðarvörur væru tollaðar og að sérhver sú iðnaðarvara, sem keypt væri erlendis frá, væri ódýrari en hin íslenzka. Það verður að tolla svona iðnaðinn til þess að hann geti þrifizt. Ég get nefnt dæmi, sem hv. þm. Barð. ætti að vera vel kunnugt. Það er sænsku húsin. Sá tollur, sem var lagður á þau, nam 7–8 þús. kr. Þetta var gert til þess að þeir, sem smiða húsin hér, geti fengið hærra kaup. Og fleiri dæmi mætti nefna. Alls staðar er sama sagan. Tollarnir eru gjald, sem lagt er á til styrktar iðnaðinum. Það er auðvitað fjarstæða að segja, að iðnaðurinn njóti ekki fjárframlaga, þótt það sjáist ekki á fjárlögum. Þetta stendur allt óhrakið, þrátt fyrir gífuryrði hv. flm. Hitt er verra að reikna út, hve miklum upphæðum þessir verndartollar nema. Þótt ekki séu til skrár um það, þá munu þeir nema mörgum tugum millj. En þetta hafði engin áhrif á skoðun mína á frv. almennt. Ég sagði um frv., að það bryti að ýmsu leyti í bága við stefnu Sjálfstfl., og þetta telur hv. þm. Barð. hreinustu firru. Ég veit ekki betur en Sjálfstfl. haldi því fram, að það beri að miða að því að hafa sem allra minnst höft í þjóðfélaginu, að einstaklingarnir séu sem frjálsastir í starfi sínu. Flokknum hefur ekki verið vel við, ef farið er að hnýsast eftir því, hvernig ýmsar verksmiðjur eru reknar. Hvenær sem óskað er upplýsinga um slík efni, þá er farið undan í flæmingi og reynt að gefa sem minnst upp. Skv. þessu frv. á svo að skipa iðnaðarmálastjóra til þess að hafa eftirlit og umsjón með iðnaðinum í landinu. Ég hélt, að þetta væri fjarlægt stefnu Sjálfstfl. Frv. er því algert brot á stefnu hans. Hitt er svo allt annað mál, hvort æskilegt sé að hafa sem mest eftirlit með ýmsum fyrirtækjum og rekstri í landinu. Við, sem erum því fylgjandi innan vissra takmarka, erum alls ekki óánægðir með þessi ákvæði frv.

Þá kem ég að því atriði, sem hv. þm. Barð. var að tala um í sambandi við búfræðimenntun mína. Við höfum sótt okkar menntun að meira og minna leyti erlendis frá. Hið sama er að segja t. d. um menntun vélfræðinga. En hér kemur þó geysilegur munur fram. Vélfræðingurinn getur stundað sína vinnu bæði hér og erlendis, t. d. í Ameríku, án þess að það þurfi að valda honum nokkrum erfiðleikum í starfi hans. Og þetta kemur til af því, að það eru sömu vélar notaðar í báta hér heima og víða erlendis. Þetta er ósköp einfalt mál. Allt annað verður uppi á teningnum hvað snertir búfræðinginn. Hann getur t. d. lært, úr hvaða efnum jarðvegur er venjulega samsettur. En þegar hann kemur til Íslands, þá veit búfræðingurinn ekkert, hvernig jarðvegurinn hér er samsettur. Hann verður þá sjálfur að hefja víðtækar rannsóknir á jarðveginum. Þess vegna þarf að gera jarðvegskort. Ef það væri hægt að byggja hér á erlendri reynslu, þá þyrftum við engin jarðvegskort. En hér eru einmitt allt önnur skilyrði fyrir hendi, og þess vegna þurfum við jarðvegskort.

Nú, þetta, sem þm. sagði um karakúlveikina, læt ég eins og vind um eyru þjóta. Það hefur verið reynt að klessa þessu á mig, en þau einu ákvæði, sem gátu komið í veg fyrir þessa veiki, voru felld úr frv. bæði á Alþingi og búnaðarþingi, og var það ekki eftir mínum ráðum. Ef mínum ráðum hefði verið fylgt, hefði þessi veiki aldrei komizt lengra en í þá eyju, þar sem féð átti að dveljast. Svo geta menn reynt að klessa þessu á mig, ef þeir halda, að þeir vaxi af slíkum málflutningi.

Þá vil ég gera grein fyrir þeim rökum, sem liggja til þess, að ég vil, að frv. verði vísað frá. Ég vil sjá, hvort sú stofnun, sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að setja upp og mun eiga að hafa aðsetur í Frakklandi, en ekki í Ameríku, eins og sumir virðast halda, hvort hún geti ekki komið Íslendingum að fullu gagni. Hlutverk þessarar stofnunar verður það að gefa upplýsingar um, hvernig haganlegast er að vinna hin ýmsu efni og koma fyrir ýmsum iðnaðarrekstri. Ég vil vita það fyrst, áður en ég samþykki þetta frv., hvort þessi stofnun geti ekki komið Íslendingum að fullu gagni. Er þá nokkurt vit í því, að Íslendingar séu einir að koma upp álíka stofnun hjá sér? Engin slík stofnun hefur áður verið til, sem geti leiðbeint hinum ýmsu þjóðum í þessu efni. Sá, sem er að framleiða niðursuðuvörur í dósir, t. d. á Bíldudal, hann getur skrifað til þessarar stofnunar og spurzt fyrir um það, hvaða vélar hentugast sé að hafa til þessa. Og það eru miklu meiri líkur fyrir því, að iðnaðarfyrirtæki geti fengið meiri og betri upplýsingar hjá þessari stofnun heldur en þótt skipaður yrði iðnaðarmálastjóri. Þess vegna vil ég vísa þessu máli til ríkisstj. og láta hana ganga úr skugga um, hvort iðnaðurinn geti ekki haft meira gagn af þessari stofnun en þeirri skipan málanna, sem hér er lagt til í þessu frv. Ef þetta reynist ekki rétt, þá horfir málið öðruvísi við. Þá skal ég gjarnan fylgja flm. eða öðrum, sem vilja koma þessu máli fram. — Sem betur fer hefur margt verið lagað frá því, sem var í upphaflega frv. Það eru komnar fram brtt. til þess að leiðrétta vitleysurnar. Og vil ég hér leyfa mér að benda aðeins á vitleysurnar í 1. lið í 5. gr. Þar segir, að iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð eigi að annast rannsóknir á skilyrðum til fullkominnar hagnýtingar á öllum þeim hráefnum, sem landið á yfir að ráða, hvort heldur úr lofti, jörðu eða sjó. Það er ekki ætlazt til lítils. Fullkomin hagnýting hráefnanna, — minna má ekki gagn gera. Það hefur víst fáum dottið í hug að hefja fullkomna hagnýtingu köfnunarefnis úr loftinu. Eftir þessu ætti þá líka að eima allt salt úr sjónum kringum landið. Fáir eru víst svona stórhuga nema flm. Margt fleira af svona hortittum var í frv. upphaflega, en er nú búið að taka burt. Auðvitað kom ekki til mála að fylgja frv. eins og það var.

Hv. flm. talaði um landbúnaðinn og þá styrki, sem hann nyti. Mín skoðun er sú, að það eigi að styrkja landbúnaðinn, eins og aðra atvinnuvegi, í því er veit að framtíðinni — í því, sem miðar að því að skapa betri lífskjör fyrir komandi kynslóðir, — eitthvað, sem býr í haginn fyrir framtíðina, en ekki sem varðar daglega neyzlu. Og það á ekki að styrkja þau fyrirtæki einstaklinga, sem þeir einir hafa gagn af, hitt á að styrkja, sem hefur varanlegt gildi fyrir framtíðina og þjóðarheildin öll nýtur gagns af. Þessi atriði, bæði í sambandi við iðnað, sjávarútveg og landbúnað, á að styrkja. En styrkur til einstaklinga á engan tilverurétt nema í gegnum almannatryggingar fyrir þá, sem orðið hafa hart úti í lífinu. Í þessu hefur landbúnaðurinn sérstöðu. Flm. virðist halda, að kynbætur búfjárins hafi ekki varanlegt gildi. Þetta er herfilegur misskilningur. Ég skal nefna dæmi. Á síðustu 30 árum hefur nytsemi kýrinnar hækkað á 2. þús. kr. Þetta hefur mjólkurmagnið aukizt. Og auðvitað búa menn að þessu í framtíðinni. Hitt er svo annað mál, að hægt er að láta þetta úrkynjast með því að halda ekki kynbótunum við. Fjölmargar jarðir eru nú í eyði, og sumar, sem hafa verið í eyði í fjölda ára, þar má sjá, að jörðin nýtur enn góðs af hinni gömlu ræktun, svo að góð ræktun jarða er mikilsverð fyrir framtíðina, en auðvitað þarf ræktun eins og annað sitt viðhald. Yfirleitt er rétt að styrkja það viðhald, sem framtíðin nýtur eða þjóðarheildin öll. — Mín afstaða er sú, að iðnaðurinn verður að fá leiðandi hönd og að sá styrkur, sem til hans yrði veittur, gæti komið að sem beztum notum fyrir þjóðarheildina. Ég mundi ekki vera andvigur þessari stefnu, ef ekki væri til þessi stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem hefur það hlutverk að leiðbeina iðnfyrirtækjum, gefa þeim alls konar upplýsingar, t. d. um markaðsmöguleika, markaðsþörf o. s. frv. Við þessa stofnun munu starfa margir tugir manna. Ég vil vita, hvaða gagn við getum haft af þessari stofnun, áður en við förum að setja hér upp iðnaðarmálastjóra, sem á að vera verkfræðingur að menntun. Menntun eins manns hlýtur ávallt að vera takmörkuð í þessu sambandi, þótt viðkomandi sé vel menntaður á sínu sviði, en hér hlýtur að koma margt fleira til greina. Hér virðist vera stofnun, sem hefur í þjónustu sinni alla mögulega verkfræðinga, og ætti því að vera öruggast að leita til hennar með fyrirspurnir viðvíkjandi iðnaðinum og öðru fleiru. Á þessu stigi get ég því ekki verið fylgjandi þessu frv., en vil benda á, hvort íslenzki iðnaðurinn hafi hér ekki einmitt betri möguleika til að afla sér sinna nauðsynlegu upplýsinga. Hver, sem yrði iðnaðarmálastjóri hér, mundi að sjálfsögðu notfæra sér þessa stofnun og leita upplýsinga til hennar. Ef ég væri iðnaðarmálastjóri, mundi ég hiklaust gera það, enda sýnist mér það ekki nema sjálfsagt. Það getur hver sem er snúið sér til þessarar alþjóðastofnunar. Aldrei fáum við þann verkfræðing, sem hafi svo alhliða þekkingu í öllu því, er að iðnaði okkar lýtur, þótt hann sé ekki margbrotinn, að hann geti gefið ráð við öllu. Ég vil láta ríkisstj. athuga þetta mál, og hygg ég, að þær upplýsingar, sem þessi alþjóðastofnun muni gefa, muni áreiðanlega verða betri í flestum tilfellum en annars staðar er hægt að fá, og það þótt við skipum einhvern iðnaðarmálastjóra til að gefa leiðbeiningar.

Í sambandi við landbúnaðarmálin er ég sammála hv. þm. Barð., að þar þurfi margt að breytast. Nú er aðalstarf Búnaðarfél. Ísl. að sinna málum, sem ríkisstjórn og Alþingi fela því að framkvæma. Það getur verið heppilegra, að þeir, sem hafa leiðbeiningarnar með höndum, hafi einnig framkvæmdina með höndum. Nú munu renna í gegnum Búnaðarfélagið 3, 4 eða 5 millj. kr., sem framkvæmdavaldið lætur það úthluta. Það getur verið álitamál, hvort Búnaðarfélagið eigi að fara með þetta. Ég hef ritað grein, sem fjallar mjög um þessi mál, í búnaðarblaðið Frey 1916 eða 1917, og í þessu atriði hefur ekkert breytzt síðan, eins og sérhver getur gert sér ljóst. Mitt álit hefur ekkert breytzt síðan. Þá skrifaði ég ýtarlega um þetta mál og setti fram mína skoðun um það, en fer ekki að öðru leyti út í það hér.