25.01.1951
Efri deild: 55. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í C-deild Alþingistíðinda. (3653)

30. mál, iðnaðarmálastjóri

Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson) :

Ég vil benda hv. síðasta ræðumanni á það, að það er alger misskilningur, ef hann heldur, að ég sé á móti frv. þessu af því, að iðnaðarvörur séu dýrari hér á landi en annars staðar. Ég benti aðeins á það, að verndartollar, sem á iðnaðarvörum væru, væru styrkur til iðnaðarins frá þjóðinni. En ég sagði ekki eitt orð um það; að það væri af þessari ástæðu, sem ég hefði þá afstöðu gagnvart afgreiðslu málsins, sem ég hef. Mín afstaða til málsins byggist á allt öðru, sem hv. frsm. meiri hl. iðnn. tók líka eftir, því að hann sagði, að þær upplýsingar, sem við fengjum frá þessari stofnun, sem ég nefndi, sem er á vegum Sameinuðu þjóðanna, væru miklu dýrari en það, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. En ég veit ekki neitt um það. Ég hélt, að sú stofnun seldi sínar upplýsingar fyrir bara mjög litið.