30.11.1950
Efri deild: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í C-deild Alþingistíðinda. (3699)

117. mál, jeppabifreiðar o.fl.

Hannibal Valdimarsson:

Ég þakka hv. flm. fyrir þau svör, sem hann veitti mér, en þar með var sú niðurstaða, að Búnaðarsamband Vestfjarða hefði enga þörf fyrir bíl í þessu sambandi og einhverjir fleiri. Ég held, að þetta sé eitthvað málum blandað um þessa minni þörf Vestfjarða en annarra í þessu sambandi.

Viðvíkjandi Keldum og jeppa þar, þá sé ég ekki annað en þetta yrði jeppi, sem stofnunin hefði til sinna umráða, en ekki tryggt, að hann yrði til umráða fyrir dýralækninn. Annars er vafasamt um ýmis fyrirtæki, hvort hagkvæmara er fyrir þau að eiga bíla eða fá þá leigða. Reynslan er sú, að bílarnir eru dýrir í rekstri. Ég er því með hæstv. dómsmrh., að það sé hæpið að flytja frv. um, að nokkrir ákveðnir einstaklingar skuli fá aðstöðu til að flytja inn bíla. Fjárhagsráð er rétti aðilinn til að annast rétta úthlutun. Menn verða að leita þangað með þær umsóknir, sem menn þykjast vel geta rökstutt, og beygja sig undir þá úrlausn, sem það veitir. Þingið á ekki að grípa þar inn í, nema um brýna nauðsyn sé að ræða.