23.01.1951
Efri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í C-deild Alþingistíðinda. (3715)

154. mál, öryrkjahæli

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Út af þessu máli, sem fram er hér komið, vildi ég gera nokkrar fyrirspurnir til hv. flm., því að hann á ekki sæti í þeirri n., sem hann óskar eftir, að frv. fari til. Ég á hins vegar sæti í þeirri n., og vildi ég þess vegna fá nokkru nánari upplýsingar í sambandi við frv.

Í fyrsta lagi vildi ég spyrja um það, hvort hv. flm. teldi það ekki mjög mikils virði, ef þetta frv. næði fram að ganga, að þá yrði ákveðið í frv., að hælið skyldi byggt á þeim stað, þar sem það gæti notið jarðhita með litlum kostnaði. Það er ákaflega stórt atriði í sambandi við rekstur slíkrar stofnunar. Ég þekki það t. d. í sambandi við Reykjalund, að það er mikið til hagsbóta fyrir þá stofnun að þurfa ekki að greiða annan hitunarkostnað en stofnkostnað. En ég sé, að hér er gert ráð fyrir, að hæstv. félmrh. ákveði staðinn fyrir hælið, og líka er talað um, að hér sé tekin upp samvinna við núverandi hæli í Arnarholti, en þar eru ekki þessi þægindi fyrir hendi.

Hins vegar er talað um í 2. gr. frv., að hælið skuli rekið sem sjálfseignarstofnun. Síðan er talað um í 13. gr., að hælið skuli undanþegið tekju- og eignarskatti. Mér er ekki alveg ljóst, hvað hv. flm. á við með þessum tveimur ákvæðum. Mér skilst, sumpart á hans ræðu og sumpart á frv. sjálfu, að það eigi að einhverju leyti að sameina sjúkrahús annars vegar og vinnustofnun hins vegar. Ef þessi skilningur hjá mér er réttur, þá vildi ég gjarnan gera fyrirspurn um það, hvort og hvernig hv. flm. hugsar sér, að rekinn yrði í sambandi við þetta iðnaður líkt og er á Reykjalundi og hælið borið uppi í meginatriðum af þeim tekjum, sem koma frá slíkum iðnaði. Hins vegar skildist mér á hans ræðu, að höfuðmarkmiðið væri að reisa hér stofnun, sem væri sjúkrahús. Bentu orð hans til þess og það dæmi, sem hann tók, að það hefði kostað 900 kr. á sólarhring að hafa heima öryrkja, sem ætti heima á slíku hæli sem hér er um að ræða. En vitanlega hefur sá einstaklingur verið vitskertur, því að annars gæti það ekki komið til mála, að þessi umönnun kostaði svo mikið. Nú er það vitað, að ríkið sjálft hefur byggt geðveikrahæli, og væri það vitanlega að fara fram hjá þeirri stofnun, að ætla sér að byggja annað slíkt hæli. Það væri miklu nær að gera ráðstafanir til þess, að geðveikrahælið, sem fyrir er, gæti tekið á móti þeim sjúklingum. — Þá er einnig verið með till. í frv. um það að koma upp fávitahæli. Mér skilst, að nokkuð af þeim mönnum, sem gert er ráð fyrir að eigi að vera á slíku öryrkjahæli sem hér er rætt um, eigi kröfu til þess að komast á það fávitahæli, sem fyrir er, og eigi þar beinlínis heima. Því væri rétt að auka við það hæli til þess að taka við þeim sjúklingum, sem þar eiga að vera samkvæmt því, sem ákveðið er um það hæli. Hins vegar, þó að nægileg hæli væru fyrir þessa aðila, þá vantar einmitt öryrkjahæli fyrir menn, sem gætu unnið fyrir sér sjálfir, ef aðstæður væru til þess, eins og t. d. á Reykjalundi. Um þetta hefur verið rætt áður í sambandi við frv. mitt, sem ég bar fram á þskj. 197, þar sem gert er ráð fyrir, að það fé, sem fengist á þann hátt, sem þar er til tekið, ef að l. verður, verði notað til þess að koma upp og starfrækja öryrkjastofnun, þannig að þangað væru teknir menn, sem ekki eru færir um að vinna nema að mjög litlu leyti, eða ekki fulla vinnu, og láta þá vinna undir eftirliti læknis, eins og t. d. á Reykjalundi, og hafa þannig ofan af fyrir sér og létta á þeim aðilum, sem hafa þá á sínu framfæri nú. Ég held, að það yrði óheppilegt að blanda saman slíkum aðilum sem mér virtist hv. flm. leggja mjög áherzlu á. Ég tel rétt að gera ráðstafanir til þess, að geðveikir menn og fávitar fái aðstoð á þeim hælum, sem gert er ráð fyrir að taki á móti þeim mönnum. Og eina ástæðan til þess, að ekki hefur verið hægt að taka þar við þeim mönnum, er sú, að ríkissjóður hefur ekki séð sér fært að leggja fram fé til þess að stækka þau hæli. Hins vegar hefur verið bætt við Kleppsspítala, en það er ekki nægilegt.

Ef þetta er réttur skilningur hjá mér, að hér eigi að setja upp deildir með geðveikum mönnum annars vegar og fávitum hins vegar, í staðinn fyrir að auka við þau hæli, sem fyrir eru, þá hygg ég, að hlutur ríkissjóðs sé gerður hér of lítill. Samkvæmt gildandi 1. ber nú ríkissjóði að greiða 67% af öllum stofnkostnaði í sambandi við sjúkrahús í sveitum landsins. Hins vegar ber ríkissjóði að greiða 40% af stofnkostnaði annarra sjúkrahúsa í landinu, nema af fjórðungssjúkrahúsum, en þar er hlutur ríkissjóðs 60%. Nú skilst mér, að ætlazt sé til, að ríkissjóður leggi fram í eitt skipti fyrir öll 1.5 millj. kr. samkvæmt 3. gr. og ábyrgist síðan lán allt að 2 millj. kr., sem á að endurgreiðast með framlögum sveitarfélaganna. Að vísu er ekki gert ráð fyrir, hvað heildarkostnaðurinn verði mikill, en af þessu má merkja, að framlögin verði um 3.5 millj. kr. Hins vegar er hér gert ráð fyrir að innheimta megi aukaframlag til stækkunar hælisins, sem þó má ekki vera hærra en 50% af stofnframlagi, og fer hlutur ríkissjóðs niður í 28%, ef þessi nauðsyn væri á að hækka framlagið. Auk þess er ekki gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram nema í eitt skipti fyrir öll, og fer stækkunin þá fram á kostnað sveitarfélaganna, en ekki ríkissjóðs.

Þetta er að taka skyldur af ríkissjóði og færa yfir á sveitarfélögin, og það er ráðgert í enn stærri stíl, þar sem hugmyndin er að reka geðveikrahæli og fávita í sambandi við þetta, en það byggir ríkissjóður og rekur á sinn kostnað. — Enn fremur er hér í 3. gr. ákveðið að heimila sveitarfélögum að leggja á ákveðið stofngjald, sem gert er ráð fyrir að greitt verði eftir þessum reglum: Sveitarfélag með allt að 150 íbúa greiði í stofnframlag 35 kr. á íbúa. Sveitarfélag með 150–1500 íbúa greiði 40 kr. á íbúa. Sveitarfélag með 1500–10000 íbúa greiði 45 kr. á íbúa. Sveitarfélag með 10000 íbúa og þar yfir greiði 50 kr. á hvern íbúa. Ég vildi gjarnan fá upplýsingar frá hv. flm., á hverju þessi flokkun byggist. Mér finnst það eðlilegt, ef sveitarfélögin eiga að bera þessa byrði, að þau eigi þá að greiða jafnt fyrir hvern íbúa. Það er óheppilegt, að það sveitarfélag, sem hefur 150 íbúa, greiði 40 kr., en aftur á móti greiði það sveitarfélag, sem hefur ekki nema 149 íbúa, 35 kr. á hvern íbúa. Ég vil því beina þeirri spurningu til hv. flm., hvort hann hefði nokkuð við það að athuga að gera þetta framlag jafnt. — Þá vildi ég einnig spyrja að því, hvort hv. flm. hefði nokkuð á móti því, ef brtt. kæmi fram við þetta frv., þannig að það yrði eingöngu byggt fyrir öryrkja, sem væru vinnufærir, og útilokaðir aðrir sem vistmenn, svo sem fávitar og geðveikir menn, þar sem þeim er ætluð vist á öðrum hælum. Allt eru þetta upplýsingar fyrir n., sem fer með málið, ef hv. flm. gæti gefið um það einhverjar upplýsingar við þessa umr. Þessar athugasemdir mínar eru ekki fram settar til þess að andmæla frv., heldur til þess að óska upplýsinga um málið, ef það mætti flýta fyrir afgreiðslu þess í n.

Að síðustu vildi ég mega spyrja hv. flm., hvort hann teldi ekki heppilegra, að samþ. yrði frv. á þskj. 197, sem hefur nú legið fyrir þessari hv. d. síðan 23. nóv. og ekki fengið afgreiðslu úr n., en í 12. gr. þess frv. er ákveðið, að það fé, sem safnast á þann veg, sem þar er gert ráð fyrir, skuli renna til þess að koma upp öryrkjahæli og starfrækja það. Ég tel, að því fé, sem nú fer til útarfa, væri betur varið eftir till. þess frv., sem ég minntist á, ef það yrði látið standa undir þessu mikla menningarmáli, sem er mjög aðkallandi og nauðsynlegt er að sé leyst á einhvern veg.