01.11.1950
Sameinað þing: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (3743)
43. mál, fiskideild hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins
Finnur Jónsson:
Það virðist svo sem hv. 2. þm. N-M. leggi ekki mikinn trúnað á þá fullyrðingu hæstv. atvmrh., að það muni ekki tefja afgreiðslu málsins, þó að það fari til n. Ég fyrir mitt leyti — þó að ég sé í stjórnarandstöðu sé ekki ástæðu til þess að rengja hæstv. atvmrh. um þetta og vil þess vegna halda fast við það, að málið fari til n. Nú er komið í ljós við þessar umr., að með þeirri mjög gætnu reglugerð, sem gefin var út fyrir síldveiðideild aflatryggingasjóðs, hafa sjómönnum og útvegsmönnum verið gefin loforð, sem ekki hefur enn þá verið hægt að uppfylla, og þeir, sem vilja láta þessi mál fá sem minnsta athugun, vilja halda áfram að gefa sjómönnum loforð um greiðslur úr aflatryggingasjóði, sem ekki er hægt að uppfylla, og án þess að uppfylla þau fyrirheit, sem gefin eru í slíkri reglugerð.