01.11.1950
Sameinað þing: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (3747)
43. mál, fiskideild hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins
Forseti (JPálm) :
Ég sé ekki ástæðu til að fresta umr., úr því að það var fellt að vísa málinu til n., og vil þess vegna slíta umr. og láta atkv. skera úr um till. Því að það er óvenjuleg leið að fresta umr. um till., úr því að búið er að fella að vísa henni til n. Umr. er því slitið, og verður fram haldið atkvgr. um till.
Tillgr. samþ. með 27 shlj. atkv.
Fyrirsögn samþ. án atkvgr.
Till. samþ. með 27 shlj. atkv. og afgr. sem ályktun Alþingis (A. 115).