31.01.1951
Sameinað þing: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (3789)
101. mál, gæðamat iðnaðarvara
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Út af þessu máli vil ég geta þess, að nú vill svo til, að í hv. Ed. hafa nú um nokkurt skeið staðið umræður um 30. mál. Það mál hefur legið fyrir hv. Alþ. síðastliðin 3 ár og átt erfitt uppdráttar, en eitt af því, sem félli undir iðnaðarmálastjóra, mundi einmitt vera þetta gæðamat iðnaðarvara, og ef það fengist afgr. nú, væri ráðin bót á þessu. Ég tel einkanlega skylt að geta þessa vegna þess, að flm. þessarar till., hv. 8. þm. Reykv., hefur haft tækifæri til í háttv. iðnaðarnefnd Ed. að ljá því máli liðsyrði, en hefur í nál. á þskj. 338 lagt til að fella frv. Maður skyldi ætla, að einmitt flm. þessarar till. yrði því máli samþykkur, ekki sízt þar sem hv. 1. þm. N-M. hefur í umræðunum í hv. Ed. lýst ástandinu í iðnaðarmálum þjóðarinnar þannig, að þar vantaði hina leiðandi hönd.