19.01.1951
Sameinað þing: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3795)
133. mál, hitaveita á Sauðárkróki
Flm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Þess hefur verið farið á leit við okkur þm. Skagf., að við flyttum þessa þáltill., og skal ég gera grein fyrir málinu í fáum orðum.
Það er kunnugt, að jarðhita hefur orðið vart í Áshildarholtsvatni við Sauðárkrók, en þar var borað eftir vatni árið 1948. Þessi borun leiddi í ljós, að um heitt vatn var að ræða við vatnið, en enn þá meiri hiti fannst, þegar borað var í vatninu sjálfu. Þegar boranirnar fóru fram, var byggður hólmi úti í vatninu. Eins og áður getur, voru þessar boranir framkvæmdar árið 1948, með þeim árangri, að þarna fengust 23 sekúndulítrar af um 70° heitu vatni úr þremur holum. Dýpsta holan er um 130 m, en hinar eru miklu minni. Þetta vatnsmagn, 23 sekl., er talið nægja til að hita upp bæinn, en þar búa um 1000 íbúar. Auk þess telur verkfræðingurinn, Gunnar Böðvarsson, engan vafa leika á því, að með fleiri borunum mundu fást til viðbótar 50–60 1 á sekúndu, einkum ef borað yrði dýpra. Nú hefur ekki þótt ástæða til að gera frekari tilraunir, en látið sitja við það, sem komið er. Hefur verið beðið á þriðja ár og séð til, hvort þetta breyttist eða hitinn minnkaði, en svo hefur ekki verið. Notagildi og efnasamsetning vatnsins er hið ákjósanlegasta, enda er lítið af súrefni í því. Mönnum er það áhugamál, að vatnið verði ekki látið renna viðstöðulaust rétt hjá bænum, ekki tvo km frá honum. Leiðslukostnaður yrði lítill, og er þegar búið að eyða 200 þús. kr. í þetta verk. Við undirbúningsáætlun er gert ráð fyrir því, að kostnaður við verkið verði um 3 millj. kr., þar af aðeins 600 þús. kr. í erlendum gjaldeyri.
Það má benda á það, að síðastliðið ár voru fluttar 3300 smál. af kolum til Sauðárkróks, sem eru seldar á tæplega 500 kr. smál. Það má gera ráð fyrir, að innkaupsverð þessara kola nemi 1 millj. og 250 þús. kr. og helmingur þessa kolamagns sé notað á Sauðárkróki, eða fyrir 625 þús. kr., eða ríflega sá erlendur gjaldeyrir, sem áætlað er að hitaveitan þurfi. Það er því augljóst, frá þessu sjónarmiði, að það er hagnaður af því að vinna þetta verk. Hitt er annað mál, að mikið fjármagn þarf til þessa verks, en Sauðárkróksbúar eru fúsir til að leggja mikið á sig, og þeir munu reyna að kljúfa það. Þeir verða samt sem áður að fá mikið lán til að ljúka þessu verki. — Það er til að greiða fyrir þessu, að við þm. Skagf. höfum verið beðnir að flytja þessa þáltill. Ég mun að sjálfsögðu láta nefndinni í té þau gögn, sem ég hef. Heildarkostnaðurinn er áætlaður 3 millj., og mætti miða við það. — Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en vona, að nefndin hraði þessu, svo að því geti orðið lokið á þessu þingi, og legg til, að málinu sé vísað til fjvn.