19.01.1951
Sameinað þing: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (3796)

133. mál, hitaveita á Sauðárkróki

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Út af ummælum flm. vil ég gera þá fyrirspurn, hvort hann teldi ekki rétt, að þáltill. væri send til rafmagnseftirlits ríkisins og umsögn fengin um málið þar, svo að þm. ættu þess kost að kynna sér þetta, og um heildarupphæðina, svo að hægt yrði að heimila ríkisstj. að leggja fram 80% af þeirri upphæð.