12.02.1951
Sameinað þing: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (3845)
145. mál, handritamálið
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. fjvn. og frsm. hennar fyrir góða afgreiðslu þessa máls. Ég get fyllilega fallizt á þær breyt., sem hún hefur lagt til að gerðar verði á till., og vænti þess, að hæstv. Alþ. sýni fullan einhug um þetta mál og samþ. að lokum till. svo breytta í einu hljóði. Það er vafalaust von okkar allra, að haldið verði áfram af fullum krafti tilraunum til þess að fá þennan dýrmæta menningarfjársjóð okkar Íslendinga hingað til landsins aftur og eindreginn ásetningur okkar að búa honum sem bezta og virðulegasta geymslu og öryggi, þegar hann fæst hingað heim aftur.