12.02.1951
Sameinað þing: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (3854)
84. mál, niðurgreiðsla á mjólk
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ef ég man rétt, þá var það fyrir miðjan nóvember, sem hv. 2. landsk. þm. og ég fluttum hér þáltill. viðvíkjandi niðurgreiðslu á mjólk, og var till. í þá átt, að við niðurgreiðslu á mjólk, sem — eins og vitað er — fer fram af almannafé, væri tekið tillit til fleiri aðila en nú er, og áttum við þar sér í lagi við þá stóru kaupstaði, sem hvorum okkar fyrir sig er ætlað að bera fyrir brjósti sérstaklega, en málið snertir að vísu marga fleiri og till. var flutt á almennum grundvelli. Eins og ég sagði, var það fyrir miðjan nóv., sem við fluttum þessa till., en fyrri umr. um hana fór fram um miðjan des., og var henni vísað til fjvn. Ég hef nokkrum sinnum innt eftir því, hvort ekki mundi bóla á Barða eða nál. koma fram um till., og þar sem nú er kominn 12. febr. og ekkert hefur heyrzt frá þeirri n., þá vildi ég mælast til þess, af því að hér er um stórt réttlætis- og prinsipmál að ræða, að hæstv. forseti skærist í það við hlutaðeigendur, að þetta mál yrði ekki svæft, heldur kæmi þannig fram, að hið háa Alþ. gæti lagt á það úrskurð.