10.01.1951
Sameinað þing: 30. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (3870)
112. mál, jöfnunarverð á olíu og benzíni
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Ég vildi segja nokkur orð út af ummælum hæstv. viðskmrh., þar sem hann gat þess, að það hefði strandað á því, að olíunotendur við Faxaflóa hefðu verið því mótfallnir, að jöfnunarverð á olíu væri sett um allt land. Ég vil benda á í þessu sambandi, að þessum málum er komið þannig fyrir, að öll olía, sem flutt er til landsins, er flutt hingað til Reykjavíkur. Og þeir, sem nota olíu hér við Flóann, öðlast betri aðstöðu í olíuverzluninni með því að fá hana fyrir lægra verð heldur en þeir fá, sem nota hana þegar búið er að dreifa henni til geyma úti um landið. Þess vegna er það fyllsta sanngirniskrafa, sem fram á er farið í þessari þáltill., að olíuverðið sé jafnað.
Því miður hef ég orðið þess var, að olíufélögin hafa gefið mjög villandi upplýsingar um það, hvað þessi ráðstöfun, að jafna olíuverðið, mundi hafa mikil áhrif til hækkunar á olíuverðið fyrir þá, sem búa hér við Faxaflóa og hafa búið við lægst olíuverð. Þau hafa gefið þær upplýsingar, að það mundi þýða 35 kr. hækkun á hverja smálest af olíu. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að þetta mundi ekki valda meiru en 10 til 15 kr. hækkun á smálest, ef rétt væri á haldið.
Í sambandi við olíuverðið í heild má náttúrlega benda á mjög mörg mistök hjá olíufélögunum. Það er sorgarsaga, á þeim miklu erfiðleikatímum, sem við höfum haft í sambandi við gjaldeyrinn, að sjá þá gífurlegu fjárfestingu, sem olíufélögin hafa leyft sér víðs vegar um landið, þar sem smáþorp með 200 til 300 íbúa hafa þrjá til fjóra benzíngeyma, sem kosta stórfé. Þetta hefur viðgengizt á undanförnum árum. Öllum olíufélögunum hefur þótt nauðsynlegt að hafa einn eða jafnvel tvo benzíngeyma á hverjum slíkra staða. — Auk þessa má benda á, að á olíuflutningaskipinu Þyrli, sem er undir umsjón Ríkisskips, hafa græðzt á hverju ári frá 600 þús. kr. upp í eina millj. kr. Þetta þykir dálítið óvanalegt, þegar um rekstur þess opinbera er að ræða, þar sem ríkið hefur þennan rekstur með höndum. En þetta er þó hægt, þegar útvegsmenn eða aðrir olíunotendur eiga hlut að máli. Þetta er náttúrlega óhæfa, sem ætti fyrirlöngu að hafa verið búið að leiðrétta. Olíuálagningin hefur að mörgu leyti verið óskiljanleg á þessum tímum, sem við lifum á nú, þar sem yfirleitt álagning á öllum vörum hefur farið stórlækkandi á hverju síðustu áranna, sem við höfum lifað. Það er upplýst, að verðlagsstjóri hefur leyft 38% álagningu á smurningsolíu fiskiflotans, miðað við gamla gengið, og 60% á alla aðra smurningsolíu, sem er notuð í landinu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að fá upplýsingar um hráolíuverð og ljósaolíuverð hefur mér ekki tekizt að fá það upplýst. — Þetta er náttúrlega ákaflega ótrúlegt, að það skuli vera hægt í sambandi við alla smurningsolíu, sem notuð er í landinu, að hafa álagninguna 35%. Hins vegar er þetta skiljanlegt út frá þeirri miklu fjárfestingu, sem olíufélögin hafa leyft sér á undanförnum árum, sem þau hafa gert þannig, að þrátt fyrir hana hefur afkoma þessara félaga verið með afbrigðum góð.
Það segir sig sjálft, að það er töluvert skipulagsleysi í sambandi við sjávarútveginn, og dagblöðin hafa talað allmikið um það. En það eru fá dagblaðanna, sem nefna á nafn, að það sé nokkurt skipulagsleysi í sambandi við olíuverzlunina. Sjaldan heyrir maður nefnt á nafn, að olíufélögin séu þung í vöfum fyrir okkar útgerðarmenn eða aðra, sem þurfa á olíu að halda, þó gjarnan séu látin orð liggja að slíku viðkomandi S. Í. F.
Ég held, að það sé engin ósanngirni í því, sem fram á er farið í þessari þáltill., og vona ég því, að eftir að hún hefur fengið þinglega meðferð, þá geti hæstv. Alþ. fallizt á að gefa henni jákvæði sitt.