22.02.1951
Sameinað þing: 45. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (3908)

168. mál, landhelgisgæzla og aðstoð til fiskibáta

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Hv. þm. Snæf. fer fram á það í till. sinni á þskj. 583, að auk þeirra tveggja báta, sem gæzlu annast við Faxaflóa og a. m. k. vestur fyrir Snæfellsnes, verði útvegaður þriðji báturinn til þeirrar gæzlu. Nú er hv. þm. Snæf. mjög staðkunnugur í sínu byggðarlagi, og þess vegna hefur honum vafalaust verið vel kunnugt um, þegar verið var að afgr. fjárlögin, hve þörfin var brýn hvað þetta snerti, en þá kom engin till. frá honum um að auka við strandgæzluna. Ég undrast, að hv. þm. skuli vera svo seinn fyrir með þessa till., því að ekki getur þessi þörf hafa aukizt stórkostlega eða viðhorfið breytzt mikið á allra síðustu mánuðum. Það er því sízt til fyrirmyndar að koma svo löngu á eftir tímanum með till. um að samþ. skuli stóra fjárveitingu utan fjárlaga; þetta er ófyrirgefanlegt af þingmönnum, þegar viðhorfið er það sama og það var, þegar fjárlögin voru samþykkt. Af þessum ástæðum finnst mér miklu eðlilegra, að athugað verði fyrst og fremst, hvort ekki má bæta úr þessu með þeim skipakosti, sem fyrir hendi er. Ég skal að vísu játa, að það er ekki rétt sjónarmið í sambandi við landhelgismálin að líta fyrst og fremst á sparnaðarhliðina, en það verður að hagnýta sem bezt þann skipakost, sem fyrir hendi er, en það er mín skoðun, að það sé illa haldið á þessum skipastóli, að hann sé miklu oftar bundinn í höfn en hann ætti að vera, og að þarna þyrfti aukið aðhald, eins og svo víða í okkar þjóðfélagi.

Þegar 2 bátar eiga að sjá um landhelgisgæzlu á Faxaflóa, þá sýnist gæzlunni, a. m. k. vestur undir Snæfellsnes, vera sæmilega borgið þar með. Ef þriðji báturinn kemur, sem sjá á um gæzluna suður fyrir Snæfellsnes, þá eiga hinir bátarnir 2 ekki að annast um nema nokkuð af Faxaflóa. Berum það saman við hlutverk Vestfjarðabátsins; sem bæði þarf að fara norður í Drangaál og suður fyrir Látrabjarg, og þykir ekki ofverkið hans, en það er helmingi víðáttumeira svæði en 2 bátar eiga að annast hér í Faxaflóa. Ef þrjá báta þarf á Faxaflóa, þó að þeir eigi eitthvað að fara suður fyrir Reykjanes, þá væri ekki vanþörf á 4 bátum á Vestfjörðum. Það væri auðvitað ákaflega æskilegt, að við hefðum efni á að gera slíka bragarbót í landhelgismálunum til að fyrirbyggja, að sorfið sé eins að línuveiðimiðunum og nú er gert, en ég hef þá trú, að það megi nýta miklu betur þann skipakost, sem nú er við þetta starf. Vegna skipa, sem eru að veiðum frá Patreksfirði og fara allt suður fyrir Látrabjarg, fer María Júlía stundum suður fyrir Látrabjarg, og þar með á Breiðafjarðarsvæðið. Ég held þó, að ekki mætti treysta um of á hana, heldur yrði fyrst og fremst að breyta hlutverki þeirra báta, sem annast nú gæzluna á Faxaflóa, og það er skoðun mín, að þeir geti einnig annazt gæzlu á Breiðafirði. Ég tel, að það sé ekki verið að leggja fyrir forstjóra Skipaútgerðarinnar að framkvæma neina skrifstofurannsókn og sízt af öllu að sú rannsókn eigi að taka langan tíma. Hann á að gefa bátunum fyrirmæli og sjá, hvort ekki er unnt að láta þá inna af hendi fullnægjandi gæzlu norður fyrir Snæfellsnes á sama hátt og þeir fara suður fyrir Reykjanes. Ef þetta gæfi ekki góða raun, þá kæmi til þess, sem við í meiri hl. fjvn. leggjum til, að þegar í stað verði fenginn bátur til að taka þarna að sér gæzluna, en það verði ekki gert fyrr en sýnt er, að það er ekki hægt með þeim skipakosti, sem fyrir er. (SÁ: Þegar vertíðin er búin.) Vertíðin er ekki búin, — en því kemur hv. þm. fyrst með þetta þegar 2 mán. eru liðnir af henni? (SÁ: Það eru ekki liðnir 2 mánuðir af henni, og þetta mál er búið að vera mánuð í meðferð þingsins.) Ég man nú ekki, hvað langt er síðan þetta var lagt fyrir fjvn. Nú er það sem sé mín skoðun, að sé það álit þingsins, að þrjú skip þurfi til gæzlu á sunnanverðum Faxaflóa, þá veiti ekki af 3–4 skipum á öllu Vestfjarðasvæðinu, þar sem mikill fjöldi skipa stundar veiðar á svæðinu frá Drangaál að Látrabjargi, og óvíða er eins mikil ásókn togara og í mynni Ísafjarðardjúps og úti fyrir ströndinni á þessu svæði. Það væri því engin goðgá, ef þetta verður samþ., þó að fram kæmi krafa frá Vestfirðingum um aukna gæzlu fyrir Vestfjörðum, þar sem ásókn togara er jafnmikil og raun ber vitni, og getur ef til vill orðið til þess að eyðileggja afkomu fólksins á þessu svæði, sem byggir afkomu sína á því, að miðin séu ekki eyðilögð. Það er engan veginn svo, að meiri hl. fjvn. hafi tekið illa hinni seinkomnu till. hv. þm. Snæf., en hann vill aðeins, að sá varðskipastóll, sem nú er fyrir í landinu, sé vel notaður, og að þetta sé því aðeins gert, að reynslan sýni, að hann sé ekki nægilegur, og sú reynsla ætti að geta fengizt á skömmum tíma. Ég taldi, að ekki væri útilokað, að bátar þeir, sem sæju um gæzluna á Faxaflóa, gætu farið vestur fyrir Snæfellsnes og suður fyrir Reykjanes og gætu bætt við sig þeirri gæzlu, sem hér er farið fram á. En talið er, að stundum hafi orðið misbrestur á því, að bátar þessir væru notaðir sem skyldi. — [Fundarhlé.]