13.12.1950
Sameinað þing: 25. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (3919)

92. mál, skömmtun á byggingarvörum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég á hér litla brtt. á þskj. 199 við þessa till. Hún gengur út á það, að í staðinn fyrir orðin „afnema nú þegar skömmtun á byggingarvörum“ komi: gefa nú þegar frjálsan innflutning á byggingarvörum. — Ástæðan til þess, að ég flyt þessa brtt., er sú, að það hefur komið fram, um svipað leyti og þessi þáltill., frá meiri hl. fjhn. Nd., frv. um breyt. á l. um fjárhagsráð. Það frv. var mjög svipað till., sem fjhn. Nd. flutti á síðasta þingi, og það frv. gengur út á það, að það skuli vera heimilt að byggja smáíbúðir án fjárfestingarleyfis. Þetta frv. er þegar gengið í gegnum Nd. og komið til Ed., og ég býst við, að það sé í fjhn. þeirrar d. Þau lagafyrirmæli, sem felast í þessu frv. á þskj. 170, eru þess vegna að nokkru leyti sama eðlis og síðari hluti þeirrar þáltill., sem hér liggur fyrir. En auðvitað er það kostur að fá lagafyrirmæli um þetta í staðinn fyrir aðeins þál. með ósk til ríkisstj., þannig að mér finnst þess vegna, að það frv., sem nú liggur fyrir þinginu, ætti að ganga rólega gegnum þingið. En ástæðan til þess, að ég flyt brtt., er sú, að fyrst svona er komið, eins og hv. þm. Vestm., hv. 1. flm., lýsti hér áðan, að nauðsynlegt er að afnema þessar hömlur, þá finnst mér hægt að stíga stærra spor með þeirri þáltill., sem hann hefur hér flutt, og þess vegna hef ég gert þessa brtt., að í staðinn fyrir orðin „afnema nú þegar skömmtun á byggingarvörum“ komi: gefa nú þegar frjálsan innflutning á byggingarvörum. — Það er dálítill munur á þessu tvennu. Með því að afnema skömmtun á byggingarefni, en gera innflutninginn ekki frjálsan, þá er raunverulega verið að setja skömmtunina úr höndum fjárhagsráðs yfir til þeirra fáu manna, sem nú flytja inn byggingarefni, þannig að í staðinn fyrir fjárhagsráð verða það einstakir menn og einstakar verzlanir, sem fá í sínar hendur skömmtun á byggingarvörum raunverulega eftir sínum geðþótta, og þetta býst ég við, að sé alls ekki meiningin hjá hv. flutningsmönnum. Það getur ekki verið meiningin hjá þeim, að t. d. timburinnflytjendur hér í Reykjavík fái einhverja einokunaraðstöðu með byggingarefni. Ég þykist vita, að tilgangurinn hjá þeim sé að fá frjálsa verzlun með byggingarefni og þeim hafi aðeins ekki þótt fært, vegna þeirrar almennu stemningar undanfarið, að miða hærra en þetta. Mín meining er raunverulega að laga þá áánægju, sem hv. 1. flm. gat um, og að það sé virkilega hægt að fá samþ. á Alþ. ákvörðun, sem gefur frjálsan innflutning á byggingarefni, og mín meining með því er, að menn hafi rétt til þess að kaupa og flytja vörur út úr landinu og byggingarefni inn. Ég get ekki séð, að fyrir þessa þjóð sé það undir nokkrum kringumstæðum skaðlegt, að byggingarefni sé flutt til landsins, og ég veit, að við gætum fengið nóg af byggingarefni fyrir þær vörur, sem menn hafa ekki fengið að selja úr landinu nú. Ég álít þess vegna sjálfsagt að freista þess, hvort Alþ. vill ekki stíga það spor að gefa frjálsan innflutning á byggingarefni, og þess vegna hef ég lagt þessa till. fram, sem hér liggur fyrir, og vona, að hv. n. taki þetta fyrir til athugunar með velvilja, og eins vil ég vona, að hv. flm. taki þessari till. vel, því ég hygg, að það sé einmitt þetta, sem raunverulega vakir fyrir þeim með þeirri till., sem þeir hafa flutt.