14.02.1951
Sameinað þing: 42. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (3937)

92. mál, skömmtun á byggingarvörum

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér inn í þær umr., sem hafa orðið milli hv. þm. um starfsemi fjárhagsráðs, heldur ætla ég að gera hér sjálfa till. að umræðuefni. Í till., sem hér liggur fyrir á þskj. 257, er áskorun á ríkisstj. um 1) að gefa frjálsa byggingu hæfilegra íbúðarhúsa, er menn byggja til eigin afnota, enn fremur byggingu útihúsa í sveitum og verbúða. — Þar skilst mér, að eigi ekki að láta bygginguna vera háða fjárfestingarleyfum. — 2) að það afnemi nú þegar skömmtun á byggingarvörum.

Mér virðist, að milli þessara tveggja atriða sé ekki fullt samræmi. Ég held, að það sé óhjákvæmilegt, ef þetta fyrirkomulag kemst á, að þá komi allar byggingar í fyrri till. án fjárfestingarleyfa, og mun það þá fremur miða að því að auka eftirspurn eftir byggingarvörum. Hafi þess vegna verið nauðsynlegt að undanförnu að skammta byggingarefni, held ég, að sú nauðsyn hljóti að vaxa, en ekki minnka, ef gefa á þessar byggingar frjálsar. (JJós: Eftir því sem fjárhagsráð starfar lengur.) Ég tel þess vegna nokkuð varhugavert, ef till. verður samþ., að samþykkja þessa áskorun um að afnema skömmtun á byggingarvörum. Ég hef heyrt menn, sem standa að byggingum, ræða um það undanfarið, að þörf væri á eftirliti með fleiri byggingarvörum en skammtaðar væru, og að misskipting ætti sér stað hér, eins og í fleiri efnum. En hvað sem því liður, þá virðist mér auðsætt, að hafi verið þörf á skömmtun að undanförnu, þá verði það nú fremur, ef gefa á byggingu frjálsa. Þess vegna leyfi ég mér ásamt hv. 2. þm. N-M. að bera fram skriflega brtt. um, að orðin „að afnema nú þegar skömmtun á byggingarvörum“ falli niður, en að öðru leyti er till. óbreytt. — Leyfi ég mér að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.