14.02.1951
Sameinað þing: 42. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (3940)
92. mál, skömmtun á byggingarvörum
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Í sambandi við þessar umr. hafa dregizt inn ýmsar aths. viðvíkjandi fjárhagsráði. Ég hef lýst yfir þeirri skoðun minni, að ég teldi fjárhagsráð hafa unnið mikið gagn með sínum störfum, og hygg ég, að löggjöfin um fjárhagsráð sé að mörgu leyti merkileg og hafi orðið til mikils gagns. Var hún í rauninni framhald af löggjöfinni um nýbyggingarráð. Eiga báðar löggjafirnar það sameiginlegt, að tilætlunin er að reyna að halda uppi atvinnu í landinu, með nokkrum afskiptum hins opinbera af atvinnurekstrinum. Hygg ég, að þessum tilgangi beggja laganna hafi eftir atvikum verið mjög sæmilega náð, meðan sú ríkisstj. var, sem hafði þá stefnu að reyna að halda uppi atvinnu handa öllum starfhæfum mönnum. En nú, þegar ríkisstj. er, sem ekki reynir að halda uppi atvinnu og heldur því fram, að kaupgetan sé of mikil, koma fjárhagsráðslögin ekki að gagni. Ég hygg, að gagn laganna fari eftir þeirri stjórnarstefnu, sem ríkir í landinn á hverjum tíma. Það er augljóst, að eftir stefnu ríkisstj. er ekki óskað eftir atvinnu allra landsmanna. Það er sagt æ ofan í æ, að kaupgetan sé of mikil, og svo er gripið til léttasta ráðsins til að minnka kaupgetuna, að auka atvinnuleysið. — Frá því að breytt var um stjórnarstefnu, má segja, að fjárhagsráðslögin séu ekki annað en skrípi. Þau koma ekki að neinu gagni vegna stefnu ríkisstj.
Læt ég nú þetta nægja út af fjárhagsráði. En ég vil benda hv. þm. Vestm. á, að jafnframt því, sem hann lýsti réttilega hinum mikla vöruskorti í landinu, þá hefur ríkisstj. ekkert gert til að reyna að ráða bót á vöruskortinum, sem nauðsynlegt er fyrir alls konar atvinnurekstur, og fer hann vaxandi eftir því sem ófriðarútlitið verður meira. Þykir mér vænt um að heyra þetta frá hv. þm. Vestm. í sambandi við till., sem ég flyt. En við verðum að gera okkur grein fyrir, að þessi vöruskortur nær ekki síður til bygginga en annars atvinnurekstrar. Ýmsar vörur eru stríðsvörur og eru ókaupandi vegna dýrtíðar eða ófáanlegar, þar sem þjóðin vill ekki sleppa þeim úr landinu. Þeir, sem gera sér grein fyrir þessu, hljóta að gera ráð fyrir, að vöntun verði á þessum vörum í landinu. Um leið og afnumin er skömmtun, mun svo fara, að þeir, sem ráða yfir stærri byggingum, ráða yfir innflutningnum. Ef skömmtun er lögð niður, er hætt við, að þeir smáu, sem vilja byggja t. d. útihús, verði alveg útundan. Það hefur verið svo, að skömmtunin var ekki sett á fyrir þá stóru, sem hafa allt í hendi sér, heldur þá litlu. Hygg ég þess vegna, að jafnhliða því að samþykkja að afnema skömmtun á byggingarvörum, og sérstaklega viðvíkjandi vöruskortinum, sem háttvirtur þingmaður Vestmannaeyinga benti á, þurfi að setja skorður, svo að byggingarefnið fari ekki allt til stærri bygginga. Ef fjárhagsráði ber ekki skylda til að sjá um, að efni fáist til hinna bygginganna, þá ætla ég, að það fari allt til þeirra stærri, en þeir litlu sitji eftir með sárt enni og fái ekki neitt. Þetta finnst mér svo greinilegt, að mig undrar, ef hv. þm. Vestm. er þetta ekki eins ljóst og mér. Vildi hann helzt benda á það sem mótbáru gegn minni brtt., að þar væri of fast stigið í ístað með að bægja frá byggingum. — Nú skildi ég hv. þm. Vestm. þannig, og bið hann að leiðrétta mig, ef ég hef ekki skilið rétt, að þegar hann ræddi um frjálsar byggingar íbúða til eigin afnota, ætti hann við byggingar, sem t. d. verkamannafélögin reisa fyrir meðlimi sína. Mér skilst, að ef bygging er gefin frjáls á annað borð, komi þetta þá líka þar undir. Þá mun ég fylgja þessari till. með þeim breyt., sem ég legg til. Vil ég biðja meðnm. mína afsökunar á því, að ég lagði þetta ekki fram í n., þegar málið var til umr., en viðaukatill. mun tryggja þennan tilgang. Er nú ekki ástæða til að fjölyrða þetta frekar. Ég hef fengið óbeint svar frá hv. þm. Vestm. við fyrirspurn minni og geri mig ánægðan með það. Vildi ég hins vegar við þá, sem vilja láta þessar byggingar ganga fyrir, ítreka aðvörun mína um að samþykkja till. óbreytta. Mundi það verða til þess að veita byggingarefni til stærri bygginga, en ekki neitt til þeirra litlu.