31.01.1951
Sameinað þing: 35. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (3966)

40. mál, vélræn upptaka á þingræðum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Snemma á þessu þingi lagði ég og hv. 11. landsk. þm. fram þáltill. á þskj. 61 um vélræna upptöku á þingræðum. Þetta mál var rætt í þinginu, og virtust ekki koma fram nein andmæli á móti því, sem farið var fram á í till. Þvert á móti virtust flestir samþykkir því, að hér þyrfti að breyta til. Málinu var vísað til n. og hefur sofið þar síðan. Það var spurt um þetta nýlega og hæstv. forseti beðinn að ýta á eftir nefndinni, að hún svæfi ekki að eilífu, og hafði hann um það góð orð. Nú vildi ég gjarnan fá að heyra, hvað málinu líður og hverju n. hefur svarað honum um ástæðuna til þess, að hún gefur ekki út nál. Ég get ekki látið mér nægja góð orð ein, en óska að sjá einhvern árangur. Ég er sannfærður um, að þegar á þessu þingi hefði mátt taka upp þessa vélrænu aðferð í annarri deildinni og spara með því stórfé.