08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í D-deild Alþingistíðinda. (3979)

73. mál, loftskeytastengurnar á Melunum í Reykjavík

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil hér minna á, að þegar fjárl. voru afgr. s. l. vor, var það tekið fram fyrir hönd ríkisstj., að ætlunin væri að keppa að því af allri orku að afgreiða greiðsluhallalaus fjárl. og komast þannig yfir árið. Enn fremur var því lýst yfir í sambandi við þær heimildir, sem samþ. voru, að um framkvæmd nokkurra þeirra hlyti að fara eftir því, hvernig horfur væru á, að þetta gæti tekizt, og þar á meðal var þessi heimild, sem hv. þm. gerði að umtalsefni. Nú er skemmst frá því að segja, eins og hv. þm. er kunnugt, að flest hefur gengið lakar en ráð var fyrir gert, og er afkoma ríkissjóðs þannig, að ekki er hugsanlegt, að hann geti utan fjárl. lagt fram þá fjárhæð á þessu ári, sem þarf til þess að leysa þetta mál. Ríkissjóður mun ekki hafa tekjur til að greiða öll þau gjöld, sem á fjárl. eru, hvað þá heldur að hægt sé að bæta ofan á slíkum stórútgjöldum sem hér um ræðir. Það verður þess vegna að leita annarra ráða um greiðslu kostnaðar við þessa framkvæmd. Nú hefur það komið í ljós við upplýsingar hæstv. flugmrh., að hann hefur aðeins fengið álit um það, hvernig heppilegast sé að afgreiða málið, og skilst mér, að hann ætli að gera till. um það og styðjast þar við álitsgerðina. Í því sambandi vil ég taka fram, að mér finnst eðlilegast, að sú till., sem hér liggur fyrir, fari til hv. fjvn., því að það verður að ákveða fé til þessara framkvæmda á fjárl., ef þingvilji er fyrir málinu, en þýðingarlaust að setja það á aukafjárveitingar. Þar koma þá til athugunar till. hæstv. flugmrh. um lausn málsins, sem sennilega koma alveg á næstunni. — Ég vil undirstrika, að mér sýnist eðlilegt, að kostnaður sá, sem flugmálastjórnin kann að taka á sig við flutning stanganna, komi á þá fjárveitingu, sem veitt er til framkvæmda flugmálanna á 20. gr. og veitt er í einu lagi, þannig að það er á valdi flugmálastjórnarinnar, hvernig henni er varið. Ég vil ekki á nokkurn hátt draga úr nauðsyn þess að koma málinu í framkvæmd, en vil aðeins undirstrika, að Alþ. verður að ráða fram úr því, á hvern hátt kostnaðurinn verður greiddur, og það er ekki gert með því að samþ. heimildir, þegar þannig gengur, að ekkert fé er afgangs til að notfæra sér slíkar heimildir. Við verðum heldur að horfast í augu við þetta mál í heild og breyta þá fjárlfrv. þannig, að þetta geti átt sér stað, ef ekki er hægt að taka af því fé, sem ætlað er til flugmálanna á 20. gr., sem mér sýnist að ætti að vera mögulegt, þar sem mér skildist á hæstv. flugmrh., að það þyrfti ekki nema um 200 þús. krónur í 2 ár til þess að koma málinu í framkvæmd. — Þá vil ég minnast á það, af því að það hefur komið fram dálítil óþolinmæði hjá hv. þm. Vestm. um lausn þessa máls og hann hefur lýst því réttilega, hversu sérfræðingar á sviði flugmála, flugumferðarstjórar og flugvallastjóri ríkisins telja hættuna ægilega af loftskeytastöngunum fyrir flugið, að mér finnst það dálítið einkennilegt, að flugráð skuli ekki hafa tekið upp í sínar till. neitt um þetta mál, sem það gerir um hvernig fénu skuli varið á 20. gr. á hverju ári, og það hefði getað raðað þessu inn í framkvæmdaröðina fyrr en gert hefur verið, því að alltaf hefur eitthvert fé verið veitt til nýrra flugframkvæmda á hverju ári. En höfuðatriðið er að fá sem fyrst lausn á þessu máli, og mér sýnist nú hilla undir hana í till. hæstv. flugmrh. og því, sem hann sagði um málið. Ég vil því leggja til, að þessari þáltill. verði vísað til fjvn.