21.02.1951
Sameinað þing: 43. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í D-deild Alþingistíðinda. (3995)

73. mál, loftskeytastengurnar á Melunum í Reykjavík

Jón Pálmason:

Herra forseti. Þetta mál og þær upplýsingar, sem fram hafa komið um það, er þannig vaxið, að full ástæða er til að segja mörg orð og stór. En ég ætla ekki út í það nú, en segja aðeins örfá orð til áréttingar því, sem komið hefur fram hjá hv. þm. Vestm. Þegar við fórum úr ríkisstj. í fyrra, var málið komið á það stig, að það mátti af öllum aðilum teljast sjálfsagt, að þessar stengur yrðu teknar af Melunum á s. l. vori. Það höfðu verið haldnir fundir og leitað samkomulags um það, að þetta skyldi gera. Þetta hefur nú dregizt til þessa dags, og samkv. því, sem fyrir liggur, er ófyrirsjáanlegt, hvað þetta kann að dragast, ef till. fjvn. verður samþ. Að sjálfsögðu hefur enga praktíska þýðingu fyrir ríkisstj., hvort flugmálin eða síminn borgar meira eða minna af þeim kostnaði, sem þarna er um að ræða. Og að láta þrætur starfsmanna þessara stofnana standa í vegi fyrir, að verkið sé framkvæmt, er fyrir neðan allar hellur. Verð ég að lýsa mikilli undrun minni yfir því, að fjvn. skuli koma með slíka till. eftir það, sem á undan hefur gengið í þessu máli. Ég vil þess vegna fara fram á, að fjvn. taki sína till. aftur og gangi inn á þá brtt., sem hv. þm. Vestm. hefur hér lagt fram skrifl., sem segir, að fela skuli ríkisstj. að láta færa þessar stengur svo fljótt sem unnt er. Og að sjálfsögðu á þá ríkisstj. að ákveða, hvernig kostnaður skiptist á milll þessara stofnana, og hlýtur hann að koma fram sem umframgreiðsla hjá þeim. Ef fjvn. vill ekki verða við þeim óskum að taka till. aftur; leyfi ég mér að skora á hv. þm. að samþ. till. þm. Vestm.