06.03.1951
Sameinað þing: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í D-deild Alþingistíðinda. (3999)

73. mál, loftskeytastengurnar á Melunum í Reykjavík

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Mér skilst, að fram hafi komið tvær brtt. í þessu máli, önnur frá mér og hin frá meiri hl. fjvn. Mín till. miðaðist víð það, að afgreiðsla hennar gæti orðið viðeigandi, þó að komið sé fram yfir áramót, þar sem orðalag fyrri till. miðaðist við það, að þá giltu fjárlög fyrir 1950. En afgreiðsla hennar hefur nú dregizt þetta, þó að hún væri lögð fram 11. okt. s. l., en þar sem afgreiðsla till. frá n. hefur dregizt svo, þá hef ég á þskj. 717 flutt brtt. sem er raunar ekki neitt frábrugðin fyrri till. að öðru leyti en því, að þar er sleppt því, sem bundið var við fjárlagatíma fyrri till. — Þá hefur meiri hl. fjvn. flutt brtt. með þeirri viðbót, að símaþjónustan verði ekki skert.

Síðan þetta hefur gerzt, hefur flugmálaráðuneytið, eða nánar tiltekið sú deild samgöngumálaráðuneytisins, sem fer með flugmál, tilkynnt, að þessar stengur verði fjarlægðar strax á þessu ári, og er það nánast það sama og í minni till. felst. Ég hafði því hugsað mér að svo komnu máli, að ekki væri ástæða til, að þessar till. væru bornar undir atkv. og gæti vel hugsað mér afgreiðslu málsins með dagskrá. Ég vil ekki strax lýsa því yfir, hvernig hún er, en vildi gjarnan heyra álit manna á því.