16.10.1950
Sameinað þing: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (4008)

25. mál, friðun rjúpu

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Það kemur mér nokkuð á óvart að taka mál þetta nú fyrir, þar sem mér skildist, að orðið hefði samkomulag um, að það yrði ekki til umr. í dag. Það er vitað, að sá ráðh., sem þetta mál heyrir undir, er fjarstaddur, og er von á honum til bæjarins í kvöld eða nótt. Ég vil því eindregið leggja á móti því að taka málið nú fyrir, þannig að hæstv. menntmrh. verði gefið færi á að skýra þinginu frá sinni afstöðu.