24.10.1950
Sameinað þing: 8. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í D-deild Alþingistíðinda. (4029)

25. mál, friðun rjúpu

Forseti (JPálm):

Ég vil lýsa því yfir, að ég tel nál., sem hér hefur verið útbýtt á þskj. 66, ósæmilegt og vítavert, og vil ég benda á setninguna, þar sem vikið er að 36 hv. þm., stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj. Þar segir svo: „Samvizka þeirra sýnist ósnortin, þó að látin séu föl landsréttindi þessarar snauðu þjóðar.“ Og á öðrum stað segir svo: „Það er sem sé verið að opna öryggisloku, svo að innibyrgð niðurlæging vegna óþurftarverka og andlegra gjaldþrota fái farveg.“ — Ég get ekki látið slíkt plagg óátalið og víti harðlega framkomu þess hv. þm., sem það hefur skráð.