24.10.1950
Sameinað þing: 8. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (4032)
25. mál, friðun rjúpu
Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti. Ég tel víst, að þessar nýju kenningar um sveiflubreytingar á rjúpnastofninum hafi valdið því, að hæstv. menntmrh. hefur ekki haft tilhneigingu til þess að framfylgja samþykkt síðasta Alþingis. En ef um það er að ræða að láta athuga svona mál ýtarlega, þá þurfti meiri rannsókn en það, að ein vísindaleg ritgerð sé lögð fram, og hér er því um allt annað en ýtarlega rannsókn að ræða, nema þá kannske frá einni hlið. Hæstv. ráðh. má vera ljóst, að það er hér eitthvað nýtt á ferð, ef takmarkalaust dráp á einni dýrategund hefur enga þýðingu fyrir stofninn. Hvað segja menn um takmarkalaust fiskidráp, hvaladráp og alls konar rányrkju? En nú er komin fram ný kenning, vísindaleg teoría um sveiflur og því um líkt á rjúpnastofninum eða þá ferðalög rjúpnanna um veröldina. Ef þessi kenning væri yfirfærð á hluti, sem standa okkur nær, svo sem ýmsa okkar nytjafiska, þá held ég að hægt væri með tiltölulega léttvægum, en náttúrlega hávísindalegum teoríum að koma í veg fyrir bann við ofveiði bæði til láðs og lagar.
Um það að fá úr því skorið 1953, hvort rjúpunni hafi fjölgað eða ekki, þá vil ég bara spyrja: Dreymir menn um, að þá liggi fyrir fullkomnar og ótvíræðar niðurstöður? Það er varla þess að vænta. Þegar það lægi fyrir með glöggum rökum og vitnisburðum úr öllum héruðum, annaðhvort það, að mergð rjúpunnar sé þessi eða þessi eða stofninn sé í vexti eða rýrnun, þá gætum við eitthvað á því byggt, en einstakar raddir héðan og þaðan eru harla lítilvægar til þess að byggja á nú, en það má auðvitað fílósófera um þetta á einn og annan veg.
Hv. frsm. 2. minni hl. taldi, að vísindaleg reynsla hefði þokað þessari þjóð bezt áleiðis, en ég hélt nú, að það, sem hefði þokað okkur lengst áleiðis, væri einmitt eiginleikar þessa hv. þm. og hans líka, dugnaður, athygli og forsjálni, en ekki vísindalegar kenningar, sem í dag blása úr austri, en á morgun úr vestri. En ef það kæmi í ljós ótvírætt, sem er langt frá því að sé nú, að miskunnarlaust dráp hafi enga þýðingu fyrir rjúpnastofninn, þá er tími til kominn að endurskoða afstöðu sína til friðunar svæða, þar sem önnur nytjadýr hafast við. Ráðherra taldi ógerlegt að framkvæma samþykktir þingsins, er hann ræðir um. En ég tel, að er Alþingi gerði þessa samþykkt, þá hafi verið einróma álit, að þessi fækkun lægi fyrir. Ég segi eins og ráðh., að engin ástæða er til þess að gera þetta að hitamáli. Mér finnst sjálfsagt, að atkv. séu látin ganga um, hvort senda skuli málið hæstv. ríkisstj., eins og 2. minni hl. vill, — allir vita, hvað það þýðir í praxis, — eða hins vegar að halda því trausti í heiðri, að hæstv. ríkisstj. fari eftir ályktun þingsins.
Ég ætla ekki að spá um þessa fjölgun eða fækkun; það er alveg þýðingarlaust. Frsm. 2. minni hl. sagði, að skýrslan um útflutning á rjúpum hefði haft alger áhrif á sína skoðun. Nú liggja engar tölur fyrir um það, hvað skyttur hafi verið margar á ári, heldur aðeins, hver útflutningurinn hefur verið. Rjúpur hafa verið í misjafnlega háu verði, og ætla ég, að engar upplýsingar séu til um, hvern þátt markaðssveiflur hafi átt í því, að menn dræpu þær, og að útflutningsskýrslur séu ekki afgerandi um mergð rjúpna á hverjum tíma.