24.10.1950
Sameinað þing: 8. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (4034)
25. mál, friðun rjúpu
Frsm. 2. minni hl. (Jón Sigurðsson) :
Af því að vikið hefur verið að mér nokkrum orðum, vil ég kvitta fyrir það.
Frsm. meiri hl. kom fram með þá fullyrðingu, að það væri eitthvað nýtt, ef takmarkalaust dráp hefði engin áhrif. Hvað er þá takmarkalaust dráp? Jú, rjúpan er friðuð frá áramótum til 15. okt. Það er ekkert ótakmarkað dráp. Þetta er sýnishorn um þær öfgar, sem beitt er. Hann og 1. flm. ræddu um, að fráleitt væri að vænta úrskurðar eftir 1953, hvort rjúpunni fjölgaði á þessum árum. Við höldum því fram, að það sé ekki ótvíræður úrskurður, heldur bending. Ef haldið er áfram að skjóta rjúpur og þeim fjölgar samt á þessum árum, þá er það sterk bending um það, að kenningin sé rétt. Tel ég, að vel sé hættandi á að prófa þetta. 1. flm. sagði, að engin rök hefðu komið fram fyrir sveiflukenningunni. Ég veit ekki, hvað hann kallar rök. Búið er að sýna fram á, að slíkt eigi sér stað um dýr og skylda fugla í öðrum löndum, og líklegt, að það sé einnig sannað um rjúpuna hér. Hitt er svo annað atriði og ekki fullkomlega leyst, hvernig á því stendur. Það hefur ætíð verið svo, að menn hafa haldið fast við sinn keip, þegar þeir skilja ekki eitthvað. Það, sem mér finnst ekki hafa komið fram, er, hvaða hætta er að friða ekki rjúpu, fyrst hún hefur verið ófriðuð öll þessi ár og flestir segja, að henni sé jafnvel að fjölga. Nú er ástæðan talin sú, að þetta sé aðkallandi, því að nú fáist hærra verð fyrir hana. Mig minnir. að mjög hátt verð hafi fengizt fyrir hana í fyrra, og mér er ekki kunnugt um, að tæknin sé meiri nú en þá, og ef tæknin hefði verið meiri en áður, hefði hún átt að vera miklu hættulegri fyrir rjúpuna. — Misskilningur er það, sem varla er ástæða til að minnast á, að sveiflutíminn hafi verið 10 ár í grein Finns Guðmundssonar; hún þarf auðvitað 5 ár til að ná lágmarki og 5 ár til að ná hámarki. Þetta er því útúrsnúningur.