06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í D-deild Alþingistíðinda. (4063)

85. mál, dagskrárfé útvarpsins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hv. þm. Ísaf. talaði um það, að ræða mín hefði ekki fjallað um það mál, sem hér væri til umræðu. Ég verð nú að álíta það, að eitthvað hafi hann dreymt í nótt, þegar við ræddum fjárlfrv., og sé ekki vaknaður enn. — Það er alger misskilningur hjá hv. þm., að ég hafi farið út fyrir það efni, sem hér er til umræðu. Brtt., sem hér er til umræðu við þáltill. á þskj. 137, fjallar um það, að Alþingi skipi þriggja manna nefnd til þess að athuga fjármál og rekstur ríkisstofnana. Það er alger misskilningur hjá hv. þm. Ísaf., ef hann heldur, að þáltill. á þskj. 137 sé hér einungis til umræðu. Brtt. á þskj. 223 er einnig til umræðu. Svo segir þessi hv. þm., að við megum ekki ræða nema um eina ríkisstofnun. Ég mótmæli því og segi, að skv. eðli tillagnanna megum við ræða um hvaða ríkisstofnun sem er. — Enn fremur var þessi hv. þm. að átelja það, að ég hafði tekið upp ummæli eftir hv. form. fjvn. Ég gerði það af ásettu ráði, því að ég þóttist vita, að hv. þm. stjórnarflokkanna mundu meta meira orð hv. þm. Barð. en orð mín.

Og þá sagði hv. þm. Ísaf. í þriðja lagi, að ég hefði ráðizt á 5 mæta embættismenn ríkisins. Þetta er alls ekki rétt. Ég var aðeins að segja frá dómi, sem hv. þm. Barð. kvað upp yfir ákveðinni ríkisstofnun. Það er vafalaust, að viðkomandi embættismenn eru mjög duglegir og líka mjög mætir menn, sem aldrei mega um frjálst höfuð strjúka. Þess vegna er það algerlega rangt hjá hv. þm. að taka þetta sem persónulega árás á þessa menn, þótt ríkisstofnunin sjálf sé gagnrýnd. — Hv. þm. Barð. minntist á það, að ég hefði ekki haft alveg rétt eftir sér og sagt, að störf fjárhagsráðs væru markleysa. Þetta er ekki rétt. Ég sagði aðeins, að hv. þm. hafi sagt, að áætlanir þess hefðu verið marklaus plögg. Ég viðurkenni fúslega, að mjög mikið af starfi fjárhagsráðs er merkilegt starf. Þar fáum við t. d. aðgang að ýmsum hagskýrslum. En hins vegar er til önnur stofnun á Íslandi, sem er ætlað að vinna þetta verk, og það er hagstofan. Þangað getum við einnig leitað. Í þessari ræðu, er hv. þm. Barð. vildi leiðrétta ummæli mín, afturkallaði hann ekki neitt af því, sem hann hafði áður sagt varðandi fjárhagsráð, heldur bætti þar við og sagði, að engin stofnun hefði torveldað eins afkomu Íslendinga og fjárhagsráð. Skv. lögum var það sett til þess að tryggja öllum atvinnu o. s. frv. Hvernig hefur því tekizt þetta að dómi formanns fjvn.? Hann segir í dag, og það í ummælum til þess að draga heldur úr þeim höggum, sem hann veitti því í gær, að engin stofnun hafi torveldað eins afkomu Íslendinga. Ég veit, að fáir menn eru kunnugri fjármálum landsins en einmitt form. fjvn. og því færari að dæma um þetta. Af þessu er ekki hægt að draga nema eina ályktun, að þetta er dýrasta ríkisstofnunin í þjóðfélaginu, enda vildi hv. þm., að við losnuðum eins fljótt við þessa stofnun og mögulegt væri. — Og við erum hér að ræða þáltill. um sparnað og brtt. við hana um að athuga rekstur ríkisstofnana. Og þá upplýsir hv. form. fjvn. okkur um það, að það sé ein stofnun í þjóðfélaginu, sem beinlínis torveldi afkomu landsmanna. Af þessu er eðlilegt að draga þá ályktun, að við losum okkur við þessa stofnun — af þessum sökum:

1) Hún er óþörf og skaðleg.

2) Hún kostar 4 millj. kr.

Hér er verið að benda á sparnað. Hæstv. fjmrh. bjóst við að geta sparað, skv. ræðu hans í gærkvöld, þegar hann væri búinn að framkvæma sínar sparnaðaráætlanir um 100%, að þá gæti hann sparað ríkisútgjöldin um 4 millj. kr. En hér bendir hv. form. fjvn. á það, að við þurfum ekki að gera annað en leggja niður eina nefnd, og þá getum við sparað ríkinu um 4 millj. kr., — og við gerum meira: við græðum á þessu, því að þessi nefnd hættir að torvelda afkomu Íslendinga.

Hv. þingmenn eru nú í vandræðum með að finna leiðir til að spara — og vilja setja dýra menn í nefnd til að rannsaka, hvað sé hægt að spara, en hér bendir form. fjvn. á, að hægt sé að spara í beinum peningum 4 millj. kr. með því að leggja niður fjárhagsráð. Gerið þið það, og leggið síðan eitthvað af þessu fé til útvarpsins og gerið það að bezta útvarpi í heimi.

Hér má minna á það, að hv. þm. Barð. sagði, að ríkisstj. hefði átt fullt í fangi með að ráða við fjárhagsráð, og það hefði jafnvel gengið svo langt fyrir 2 árum, að þá var einn ráðh. að hugsa um að segja af sér vegna andstöðu við fjárhagsráð. Þegar þetta ráð var sett á laggirnar, þá var það hugsað þannig, að ríkisstj. gæti breytt um menn í því, en það hefur þá snúizt þannig, að skipta þyrfti um ráðherra. (GJ: Þetta er nú misskilningur.)

Nú er sem sé upplýst, að a. m. k. 4 millj. sparast og raunverulega miklu meira, bara ef við viljum. Og nú vil ég spyrja hv. 3. landsk., hvort honum finnist ekki tilefni að ræða um aðrar ríkisstofnanir en útvarpið. Hjá þessu er hitt ákaflega lítið atriði, hvort hafa megi einhver önnur hlutföll, t. d. á milli söngs eða hins talaða orðs í útvarpinu. Ef það er ekki tilefni, sem snertir Alþingi, að ræða um fjárhagsráð, sem torveldar afkomu alþjóðar, þá skil ég ekki hlutverk þess. Ég held það tal flm. falli nú um sjálft sig, að hér væri ekki tilefni að ræða um aðrar ríkisstofnanir en ríkisútvarpið.

Hv. 3. landsk. taldi, að hér væri ekki stefnt að því að koma höggi á neina menn. Það er nú alltaf erfitt að segja um tilganginn, hver sé nú tilgangurinn með þessu og þessu. Hitt má hv. 3. landsk. gjarnan athuga, hvers vegna hans samflokksmenn hafa einmitt valið þessa einu stofnun út úr og hvort það sé ekki tilefni til þess að halda, að nú eigi að koma höggi á einhvern mann. Ekki er hægt að fullyrða, hvað það er, sem vakir fyrir flm. með þessari till. — og oft geta svona till. snúizt upp í hreina og beina ofsókn. Nú má vel vera, að ekkert slíkt vaki fyrir flutningsmönnum, en till. getur þó orðið sem tæki til ofsóknar — og einhverju eru sjálfir flm. að hlífa, ef þeir standa á móti því, að svipuð athugun fari fram hjá fleiri ríkisstofnunum. Þess vegna bendir allt í þá átt, að réttlátara sé að samþ. brtt. hv. minni hl. allshn. Með henni er fullnægt öllu réttlæti, og enginn gerir sig sekan um hlutdrægni gagnvart öðrum ríkisstofnunum.