22.11.1950
Sameinað þing: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (4078)
15. mál, atvinnuaukning í kaupstöðun og kauptúnum
Finnur Jónsson:
Ég hef veitt því eftirtekt, að 15. mál Sþ., þáltill. um skipun n. til að gera till. um aukna atvinnu í kaupstöðum og kauptúnum, hefur ekki verið tekið á dagskrá, en nál. eru komin bæði frá meiri hl. og minni hl. allshn. um þetta mál og eru á þskj. 162 og 168, dags. 14. nóv. Ég vildi spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hverju það sætir, að þetta mál er ekki tekið á dagskrá, og jafnframt láta þess getið, að áskoranir um að samþ. till. og að skipa þá n. hafa borizt frá bæjarstjórnum, sem bíða eftir því, að ríkisstj. geri eitthvað í þessu máli, en málið er mjög aðkallandi. Það segir að vísu í nál. meiri hl., að ríkisstj. hafi tekið þetta mál til athugunar, en ég fullyrði, að hvað mínu kjördæmi viðvíkur hefur engin athugun farið fram og enn síður að um nokkur úrræði sé að ræða til þess að bæta úr atvinnuleysinu, sem er orðið mjög geigvænlegt. — Ég vil því fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann héldi fund bráðlega og tæki þetta mál á dagskrá, svo að það geti fengið afgreiðslu í sameinuðu þingi.