15.11.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í D-deild Alþingistíðinda. (4115)

78. mál, vélbátaflotinn

Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Það gleður mig það traust, sem hv. 4. þm. Reykv. ber til mín. En mikinn berserksgang hyggur hann mig hafa, þegar ég á að láta svo hendur standa fram úr ermum að bíða ekki eftir tilmælum frá L. Í. Ú. um lausn málsins. Ég segi ekkert um það, hvort ég hafi haft meiri eða minni áhyggjur af þessu áður en landssambandsfundurinn kom saman. Það er sjálfsagt með mig eins og hv. þm., að það er auðvelt að leiða hugann að þessu máli án þess að fá hvatningu frá einum eða öðrum. — Út af því, sem hv. 3. landsk. sagði, get ég einnig verið fáorður. Það er sýnilegt, að þarna eru mismunandi sjónarmið. Hv. 1. flm. hefur skýrt frá því, að hann hafi borið þessa till. fram vegna þess, að honum hafi ekki verið ljóst, að neitt stæði til í málinu. Þegar hann svo heyrir, að ríkisstj. hefur falið fiskábyrgðarnefnd að fjalla um málið, þá telur hann vel farið, að þessari till. sé vísað til n. og liggi þar þar til séð er, hvort árangur verður af þeim viðræðum. Aftur á móti segir hv. 3. landsk.: Þetta eru tvær nefndir, sem geta unnið að þessu verkefni hvor í sínu lagi, — og má þetta til sanns vegar færa. Að svo miklu leyti sem menn ganga út frá því sem gefnu, að þetta þurfi til kasta Alþingis að koma, þá er eðlilegt að hugsa, eins og hv. 3. landsk. gerir, að þingnefnd gæti fylgzt með störfum nefndar hinna fróðu manna. Bæði sjónarmiðin hafa nokkuð til síns máls — og gætu verið rædd í þeim hv. n., sem fær málið hér til meðferðar. En ég hélt, að þessir fróðu menn, sem hafa fjallað um það, hverjar af óskum og kröfum útgerðarmanna væru þess eðlis, að nauðsynlegt væri að verða við þeim, að þeir menn ræddu málið við útvegsmenn og gæfu síðan ríkisstj. skýrslu, og ætlaði ég ríkisstj. þann vanda að leysa málið án tilhlutunar Alþingis, ef auðið væri, en að öðrum kosti að leggja fram till. í málinu. Það er vandi, sem verður að hvíla á hverri ríkisstj., að leggja fram sín úrræði, og ég álít, að stjórnarandstaðan hafi ekki skyldu til frumkvæðis í málinu eða þurfi að eiga jákvæðan þátt í slíkri tillagnagerð. Ef því mætti treysta, að allir hv. þm. hafi sömu skoðun og hv. 3. landsk. og að enginn vildi ná sér í pólitískan ávinning í sambandi við þetta mál, þá ætti ríkisstj. að kalla alla þingflokkana til ráðstefnu, en þess hélt ég að væri ekki kostur og viðurkenni, að vandinn og skyldan hvílir hér á ríkisstj.