28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í D-deild Alþingistíðinda. (4141)

111. mál, sjóveðskröfur síldveiðisjómanna

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónason) :

Herra forseti. Till. þá, sem hér um ræðir, tók fjvn. fyrst fyrir skömmu eftir að Alþ. kom saman aftur, — eða á fyrsta fundi sínum eftir þinghlé, en henni hafði verið vísað til n. 8. jan. Nefndinni þótti rétt að senda till. til umsagnar skuldaskilasjóðs og Alþýðusambands Íslands. Óskaði n. fyrst og fremst að fá upplýst eftirfarandi atriði: Í fyrsta lagi, hve hárri upphæð óinnleystar sjóveðskröfur næmu, sem til hafa orðið á sumarsíldveiðunum árin 1949 og '50, með sundurliðun fyrir hvort ár. — Í öðru lagi, hve hárri upphæð aðrar óinnheimtar sjóveðskröfur næmu, sem borizt höfðu í sambandi við skuldaskilin, og í þriðja lagi, hvort ekki mætti treysta því, að allar þessar kröfur verði greiddar í sambandi við skuldaskilin og hvað gert væri ráð fyrir, að langur tími liði, þar til greiðslan gæti farið fram.

Nefndin taldi sig ekki geta afgr. þessa till., fyrr en svörin við þessum spurningum hefðu borizt henni, og óskaði því eftir, að svörin bærust ekki síðar en 25. jan.; enda var þá úti sá frestur, sem auglýstur hafði verið til þess að leggja inn kröfur. Svörin bárust svo nefndinni frá báðum þessum aðilum 20. jan. og voru lesin upp á næsta fundi hennar, 23. s. m.

Einn nm. (ÁS) óskaði eftir, að málið yrði afgr. samstundis á þann veg, að þáltill. yrði samþ. óbreytt. Á þetta gat meiri hl. n. ekki fallizt og vildi láta fresta málinu, þar til frekari upplýsingar lægju fyrir frá stjórn skuldaskilasjóðs, sem væntanlegar voru skömmu eftir 25. jan. Þann 7. febr. gefur svo minni hl. n. (ÁS) út sérstakt nál. á þskj. 643, öllum til undrunar, og tekur þar fram, að meiri hl. n. vilji láta fella till. Eru þessi ummæli minni hl. byggð á algerum misskilningi og alveg tilefnislaus. Var honum bent á þetta á fundi og þess vænzt, að hann leiðrétti það, sem hann hafði sagt á þskj. 643 ásamt 6. landsk. Þykir mér rétt að taka þetta fram og leiðrétta þá villu, að meiri hl. n. hefði viljað afgreiða málið á þann hátt að fella það.

Að loknum þeim fresti, sem ákveðinn hafði verið til að lýsa skuldakröfum, aflaði n. sér enn upplýsinga frá stjórn skuldaskilasjóðs, og fékk þá upplýst eftirfarandi:

Í fyrsta lagi hafði stjórn sjóðsins enn orðið að framlengja frest til þess að lýsa skuldakröfum, þar sem innkomnar kröfur voru ekki í samræmi við innsenda reikninga útvegsmanna. Í öðru lagi er fyrst hægt að bera saman innsendar kröfur og reikninga til þess að sannprófa þannig, hvort kröfurnar séu réttar, eftir að frestur sá, sem nú hefur verið gefinn, er útrunninn. Fyrr en því verki er lokið, er ekki hægt að segja neitt um það með vissu, hve hárri upphæð ógreiddar sjóveðskröfur nema. En það er frumskilyrði fyrir því, að hægt sé að greiða kröfurnar, að vitað sé um, hvort þær séu réttmætar, hver sé eigandi þeirra og hversu há upphæðin er. En um þessi atriði liggur ekkert ljóst fyrir enn þá. Einnig fékk n. þær upplýsingar hjá sjóðsstjórninni, að hún muni gera allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að vinna úr þessum gögnum, jafnskjótt og þau liggja fyrir, og bráða uppgjöri og greiðslum, og væntir þess, að því geti orðið lokið fyrir 1. júlí n. k.

Með lögum nr. 120/1950, um aðstoð til útvegsmanna, er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður aðstoði útvegsmenn til þess að semja um skuldir bátaútvegsins og greiða þær, og eru þar meðtaldar sjóveðskröfur. Skal þessu lokið fyrir 1. júlí n. k. Eins og að framan greinir, hefur sjóðsstjórnin gert allt, sem unnt er, til þess að fá yfirlit yfir, hve mikil skuld er ógreidd, og á hvorki nefndin né ríkisstj. sök á þeim drætti, sem orðið hefur, því að tafir þær, sem á hafa orðið, eru eingöngu því að kenna, að kröfunum hefur ekki verið lýst að fullu á hinum auglýsta tíma.

Nefndin hefur fengið þær upplýsingar, að kauptrygging að frádregnum aflahlut á 99 skipum árið 1949 var 2.75 millj. og að greitt hafi verið upp í þá upphæð 2.2 millj. — eða 80%. Hins vegar liggja engar upplýsingar fyrir um það, hvort mismunurinn, ½ millj. kr., hefur verið greiddur af útvegsmönnum eða er enn ógreiddur, né um hitt, hvort um aðrar og frelsari sjóveðskröfur hefur verið að ræða á því ári eða hvort þær hafi verið greiddar. En upplýsingar um þetta áttu að koma fram í sambandi við eftirlýstar skuldir. Nú er vitað, að skipshafnir eiga forgangsrétt í skipi til tryggingar kaupi, en hins vegar liggur ekkert fyrir um það, að hve miklu leyti hann hefur verið tryggður skipshöfnum. Hins vegar er líka vitað, að sjómenn gátu ekki gengið að bátunum vegna löggjafar, en þeir gátu lýst kröfum sínum og tryggt sér rétt sinn. En hvort þeir hafi gert það, eru engar skýrslur til um.

Nefndin lítur svo á, að það muni ekki flýta fyrir málinu, þótt það verði tekið úr höndum skuldaskilasjóðs, heldur sé bezt að láta hann ljúka því fyrir 1. júlí.

Það er ljóst af bréfi Alþýðusambands Íslands, dags. 18. jan., að því er algerlega ókunnugt um þessi mál og veit ekki um upphæð ógreiddra launa, sem tryggð eru með sjóveðskröfum, og hefði þó mátt vænta þess, að þetta stéttarfélag gæti gefið nokkrar upplýsingar um þetta atriði sérstaklega.

Nefndinni er ljós nauðsyn þess, að úr þessum vandræðum verði eins fljótt greitt og auðið er, svo að sjómenn fái laun sín greidd eins fljótt og hægt er. Hún væntir þess annars vegar, að sjóðsstjórnin uppfylli loforð sín um að hraða uppgjörinu, og verði það ekki síðar en 1. júlí, og hins vegar að ríkisstj. sjái svo um, að nægilegt fé verði fyrir hendi til þess að greiða sjómönnum.

Þetta eru þá niðurstöður nefndarinnar, og leggur hún til, að till. verði afgr. með breyt. á þskj. 716, sem hljóðar svo með leyfi hæstv. forseta :

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að innköllun skulda í sambandi við skuldaskil bátaútvegsins og uppgjöri verði hraðað svo sem frekast er unnt og handbært verði nauðsynlegt fé til þess að greiða viðurkenndar sjóveðskröfur jafnskjótt og uppgjör liggur fyrir hjá stjórn skuldaskilasjóðsins.“ — Fyrirsögnin skuli svo breytast í samræmi við þessa breyt. og orðast svo: „Till. til þál. um uppgjör og greiðslur á sjóveðskröfum sjómanna.“

Við nefndarmenn meiri hl. teljum því, að sé þessi háttur hafður á, þá muni því takmarki náð tímanlega, að greiddar verði allar sjóveðskröfur sjómanna, og það fyrir 1. júlí n. k. Ég hef ekki séð ástæðu til að birta í nál. meiri hl. bréfið frá stjórn skuldaskilasjóðs, vegna þess að það er birt með nál. minni hl. á þskj. 643. Á því þskj. er einnig birtur sem fylgiskjal II útdráttur úr dómsbók í sambandi við kröfu Guðjóns Sigurðssonar á hendur eigendum l/v Huginn R. E. 83. Ég get raunar ekki skilið, hvers vegna verið er að blanda þessu inn í þetta mál, sem hér liggur fyrir, og ég vildi gjarnan fá að heyra ástæðurnar fyrir því, að þessi dómur er tekinn hér upp, hjá hv. frsm. minni hl. Það er vitað, að eigendur Hugins sóttu um aðstoð til skuldaskilanefndarinnar af því fé, sem veitt var til bátaútvegsins í þessu skyni, en þeirri beiðni var vísað frá með þeim forsendum, að þeir gerðu ekki bátinn sjálfir út. Það er einnig vitað, að leigjendurnir sóttu líka um aðstoð, en þeim var synjað um hana vegna þess, að þeir áttu ekki skipið. Þannig get ég ekki séð, að þetta mál eigi nokkuð skylt við það mál, sem við erum að ræða um. Það væri þá eingöngu, að fylgiskjalið ætti að sýna það, að aðrir gætu farið eins að og lagt sínar kröfur fram, en að öðru leyti sé ég ekki, að þetta skjal hafi nokkra þýðingu í sambandi við þá till., sem við erum að ræða. En ég vænti skýringar frá hv. frsm. minni hl. um þetta atriði. Ég mun svo ekki ræða þetta mál frekar, en legg til, að þáltill. verði samþ. með þeim breytingum, sem prentaðar eru á þskj. 716.