24.01.1951
Sameinað þing: 32. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (4166)
119. mál, fjárþörf landbúnaðarins
Landbrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Það er nú víst ekki þörf á að lengja mjög umræður. En ég benti á, að ef ekki er reiknað með verðhækkunum, en hins vegar sams konar framkvæmdum og 1949, þá þarf til þessara hluta 40–42 millj. á næstu 5 árum, og það þýðir í rauninni 80 millj. kr. Verði farið lengra í þessum framkvæmdum í sveitunum, þá þurfum við á næstu árum um 130 milljónir. Þá vil ég enn á ný benda á það, að ef ekki verður útvegað fjármagn, þá stöðvast byggingar í sveitum; það er nú þegar farið að segja við bændurna, sem eru að leita sér aðstoðar lánsfjárstofnananna, að engir peningar séu til. Ástandið á s. l. ári hefði þannig orðið mjög slæmt, ef ekki hefðu komið til 14 millj. kr. í gegnum gengisgróðann. Ég vil því beina því til þeirra, sem áhuga hafa fyrir þessu máli, að gera þessa till. að stuðningi við ríkisstj. til að afla lánsfjár til þessara hluta, því að með því móti kemur hún fyrst og fremst að gagni. Ýtarleg rannsókn verður fyrst og fremst til að tefja það. Það er féð, sem bændurna vantar. Og það er eindregin ósk mín, að málinu verði snúið inn á þessa braut.