08.01.1951
Sameinað þing: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í D-deild Alþingistíðinda. (4181)
130. mál, lánsfjárútvegun til iðnaðarins
Emil Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara út í að ræða það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði hér nú síðast um hærri lánsfjárpólitík og það, sem henni fylgir, enda nefndi hv. þm. ekki lægri upphæðir en þúsundir milljóna, en hér er til umr. till. um lánsfjárþörf iðnaðarins, sem í frv. er ekki gert ráð fyrir að þurfi að nema frá ríkissjóði nema í hæsta lagi 2½ millj. kr. Það er rétt, að þetta frv. á þskj. 286 barst iðnn. Nd. fyrir nokkru, og klofnaði n. um málið, 3 nm., ég, hv. 7. þm. Reykv. og hv. 6. þm. Reykv., hafa borið þetta frv. fram, og leggjum við til, að það verði samþ. eins og það barst til n., en 2 nm., þeir hv. þm. V-Húnv. og þm. Mýr., sem að þessari till. standa, treystu sér ekki til að fylgja frv. og bera fyrir sig í grg. fyrir þessari till., að málið hafi ekki hlotið nægilegan undirbúning og að vitað sé og viðurkennt, að málið muni ekki fá afgreiðslu á þessu þingi, — en það voru þessi orð, sem komu mér til að standa hér upp. Hvaðan hafa þessir hv. þm. það, að málið sé ekki nægilega undirbúið og að það muni ekki ná fram að ganga á þessu þingi? Málið hefur verið í undirbúningi hjá iðnaðarmönnum í mörg ár, og fyrir tveim árum var það sett í frv.form, en áður var það athugað vel og lengi, og töldu iðnaðarmenn, að það eina, sem þeim dygði í þessum efnum, væri sérstök lánastofnun til að sinna þessum málum. Nú er það svo, að til er lánastofnun, sem á að sjá iðnaðinum fyrir lánum, en það er Útvegsbankinn, en í l. um stofnun hans segir, að hann skuli sérstaklega styðja sjávarútveg, iðnað og verzlun landsmanna, en iðnaðarmönnum þykir hann ekki hafa sinnt iðnaðinum nógu vel og fóru að athuga málið nánar, og er þetta frv. árangurinn af þeim athugunum, svo að frv. er ekki óhugsað og óundirbúið, eins og segir í grg. þessarar þáltill., heldur niðurstaðan af margra ára undirbúningi og athugunum, svo að því fer fjarri, að frv. sé ekki sæmilega undirbúið, og ég vil fullyrða, að mörg þau frv., sem hér eru lögð fram og fá afgreiðslu hér í þinginu, eru ekki eins vel undirbúin og þetta frv. Ég skal ekki fara út í að ræða efnishlið frv., því að það er ekki hér til umr. í dag, og vil því ekki þreyta hv. þm. og hæstv. forseta með löngu máli, en ég vil þó nefna eitt atriði úr því, en það er, að iðnaðarmenn bjóðast til að leggja fram margar millj. kr., ef Alþ. treystir sér til að leggja fram 2½ millj. kr., og einhvern tíma hefur Alþ. lyft þyngra hlassi, og ég skal fullvissa hv. 2. þm. Reykv., að þær 2½ millj. kr. muni hvorki gera til né frá í því að auka lánsfjárþensluna í landinu. Ég tel mig mega fullyrða fyrir hönd Alþfl., að hann er fús til að stuðla að framgangi þessa máls, og mér skildist á hv. 2. þm. Reykv., að eins mundi vera um Sósfl., og ég ætla, að hv. 7. þm. Reykv. hafi talað hér sem fulltrúi síns flokks, og virðist þá vera fyrir hendi nægilegur meiri hl. í þinginu til að miða málinu áfram. Það er því algerlega út í bláinn, þegar sagt er í grg. þessarar þáltill., að vitað sé, að frv. fái ekki afgreiðslu á þessu þingi. Ef hugur fylgir máli hjá flm. frv. og þeim flokkum, sem á bak við þá standa, þá tel ég, að það eigi að vera leikur að koma málinu í gegn á þessu þingi. Væri þá hægt að spara sér það erfiði, sem þessari rannsókn yrði samfara. Ég er út af fyrir sig ekki á móti því, að þessar athuganir verði gerðar, því að alltaf má vænta þess, að þær leiði nauðsynlegar umbætur í ljós, og einkum teldi ég ástæðu til, að þær yrðu gerðar, ef svo fer, að iðnbankamálið hljóti ekki afgreiðslu á þessu þingi. En ég vil telja, að á því séu miklir möguleikar, þar sem frv. er flutt af þremur helztu þingflokkunum, og á afgreiðslu þess vil ég leggja höfuðáherzlu. Og þá fyrst, þegar útséð er um, að það nái fram að ganga, vildi ég ljá máls á, að þessi athugun verði hafin. Þá mundi ég var því fylgjandi. En ég legg höfuðáherzlu á, að frv. um iðnaðarbankann verði afgr. á þessu þingi.