08.01.1951
Sameinað þing: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í D-deild Alþingistíðinda. (4184)

130. mál, lánsfjárútvegun til iðnaðarins

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Í grg. fyrir þessari þáltill. segir, að vitað sé og viðurkennt, að frv. um iðnbankann nái ekki fram að ganga á þessu þingi. Þetta hefur hér verið gert að umræðuefni, og gætir þar nokkurs misskilnings. Það frv., sem hér um ræðir, var afgr. frá n. hinn 5. des. s. l., og ég viðurkenni, að ég taldi þá litlar líkur fyrir því, að það næði afgreiðslu á þessu þingi; en ummæli, sem hnigu þá í þá átt, voru miðuð við það, að þingi þessu lyki fyrir jól, eins og ráð var fyrir gert. En þegar sú ákvörðun var tekin að fresta þinginu og kveðja það aftur saman eftir hátíðar, þá var sú ástæða úr sögunni, sem hér hefur verið vitnað til, og ætti nú að vera betri tími til að taka málið fyrir til umræðu og afgreiðslu á þessu þingi.