19.01.1951
Sameinað þing: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í D-deild Alþingistíðinda. (4206)
149. mál, atvinnulífið í Flatey á Breiðafirði
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Þetta mál er flutt inn í þingið að tilstuðlan Alþýðusambands Íslands eftir tilmælum verkalýðsfélagsins í Flatey á Breiðafirði. Ef hv. þm. Barð. hefði verið staddur hér á landi, þegar tilmæli þessi bárust, þá hefði ég ráðgazt um þetta við hann sem fulltrúa kjördæmisins, en ég leit svo á, að mál þetta væri svo aðkallandi og ekki langt eftir af þingtímanum, en ég formaður Alþýðusambands Vestfjarða og A. S. Í. var gengið inn í málið, að ég taldi ekki fært að bíða með að færa það inn í þingið. Á þingi A. S. Í. á öndverðum þessum vetri var lögð höfuðáherzla á atvinnumálin og samþ. svo hljóðandi ályktun um þau mál:
„Þingið beinir þeim tilmælum til verkalýðsfélaganna, að þau sendi A. S. Í. till. sínar um, hvað helzt megi verða til varanlegra atvinnubóta á hverju félagssvæði, svo sem hafnarbætur, samgöngubætur, bættur skipastóll, stofnun iðnfyrirtækja, virkjun vatnsafls, ræktunarframkvæmdir eða aðrar þvílíkar lífrænar atvinnubætur.
Jafnframt skorar þingið á sambandsfélögin, hvar sem atvinnuleysi gerir vart við sig, að senda A. S. Í. mánaðarlega stuttorðar skýrslur um atvinnuástand á félagssvæðinu, enda láti Sambandið vinna úr skýrslunum og beiti sér fyrir aðstoð til aukinnar atvinnu.“
Þessi ályktun, sem gerð var á Alþýðusambandsþinginu ásamt mörgum fleiri ályktunum, sýnir hve ranglátt er að bera það á verkalýðssamtökin, að þau beiti sér eingöngu fyrir kaupstrekkingi. Skömmu eftir að fulltrúar á Alþýðusambandsþinginu fóru heim til sín, tóku að berast skýrslur um þetta efni frá verkalýðsfélögunum víðs vegar um land til A. S. Í. og m. a. skýrsla frá verkalýðsfélaginu í Flatey. Það var raunar vitað, að slæmt atvinnuástand var í Flatey, en ég held, að margir hafi orðið undrandi, þegar það vitnaðist af skýrslu verkalýðsfélagsins, að í nóvembermánuði höfðu 77 manns haft 7570.74 kr. sér til framfæris, eða aðeins 98.32 kr. á mann að meðaltali, en þó er skýrsla verkalýðsfélagsins fyrir desember enn ömurlegri, en þá höfðu 66 manns, nokkrir höfðu farið í burt í atvinnuleit frá því í nóv., 1737.98 kr. sér til framfæris um mánuðinn, eða 26.33 kr. á mann að meðaltali. Þegar þessi frétt barst, mátti öllum vera ljóst, að um hreint neyðarástand var að ræða á staðnum. Ég taldi því ekki gerlegt að bíða með að flytja þessa till. og taldi nauðsyn að leggja málið fyrir hæstv. ríkisstj. og Alþ. til skjótrar og vinsamlegrar úrlausnar. Mér virtust till. þær, sem stjórn verkalýðsfélagsins í Flatey setti fram í bréfi sínu til A. S. Í., stefna í rétta átt og vera sanngjarnar. En þær voru: Í fyrsta lagi að tryggja hraðfrystihúsi Flateyjar lán, svo að það gæti greitt áfallnar vinnuskuldir, lokið við frystihúsbygginguna og starfrækt hraðfrystihúsið. Í öðru lagi að útvega Flateyingum tvo báta af heppilegri stærð, annaðhvort leigða eða keypta, til að tryggja hraðfrystihúsinu nægilegt verkefni. Og í þriðja lagi, að hlutafélag það, sem rekur m/b Sigurfara og almenningur á staðnum stendur að, fengi möguleika til að starfa. Á undanförnum árum hefur fólkið í Flatey látið hendur standa mjög fram úr ermum. 1946 var stofnað hlutafélagið Sigurfari til að kaupa og reka 50 smálesta bát, Sigurfara, og stóðu að hlutafélaginu Flateyjarhreppur og allur almenningur á staðnum. En bátur þessi hefur orðið illa fyrir barðinu á síldarleysinu á undanförnum sumrum, en hefur aftur á móti gengið sæmilega á vetrarvertíðum, en hann hefur einnig orðið fyrir vélbilunum, og er tvísýnt um, hvort hægt verður að halda rekstri hans áfram í framtíðinni. Næsta ár, 1947, var svo stofnað hlutafélagið Hraðfrystihús Flateyjar til að byggja og starfrækja hraðfrystihús. Að því félagi stóðu: Flateyjarhreppur, Kaupfélag Flateyjar og 50 einstaklingar á staðnum. Hafizt var handa um byggingu hússins næsta ár, 1948, en efnisskortur o. fl. tafði framkvæmdir, en haustið 1949 var húsið komið vel á veg, en þá var félagið orðið algerlega félaust, en þá buðust byggingarverkamenn til að lána vinnu sína, til þess að unnt væri að halda byggingunni áfram. Í marz 1950 var húsið svo langt komið, að hægt var að hefja móttöku á fiski, þó að fjarri færi því, að húsið væri fullgert. En fyrirtækinu var ekki kleift að greiða vinnulaunin við bygginguna, og standa þau enn inni ásamt vinnulaunum, sem ég mun síðar koma að.
Sveitaryfirvöldin höfðu á árunum 1947 o.g 1948 byggt hafskipabryggju, sem við er 18–19 feta dýpi um stórstraumsfjöru og því fært fyrir allstór skip að leggjast þar að. Þannig hafa öli öfl á staðnum unnið að því að koma upp þeim aðstæðum, að hægt væri að halda uppi lífvænlegu atvinnulífi. Það má ef til vill segja, að seint hafi verið hafizt handa í þessum efnum, en engu að síður er lofsamleg sú viðleitni, sem íbúarnir hafa sýnt til að bjarga sér sjálfir. Og það er ekkert smáræði, sem svo litið sveitarfélag hefur lagt fram í þessu skyni.
Framlag hreppsins til hafnarvirkjanna
er orðið ......... kr. 300.000.00
Hlutafé Hraðfrystihúss
Flateyjar h/f ....... — 525.000.00
Hlutafé Sigurfara h/f ..... — 85.000.00
Önnur lán og framlög einstaklinga til þessara fyrirtækja,
ábyrgðir ekki meðtaldar .. — 300.000.00
Samtals kr. l.210.000.00
Allt þetta hefur fólkið á staðnum lagt fram og gengið mjög nærri sér við það, og nú er geta þess búin og allt stendur fast og ekkert útlit fyrir, að hægt sé að hefja neina starfrækslu atvinnutækja þar á staðnum. Ef engin hjálp berst, virðist ekki um annað að ræða en að þessi fyrirtæki verði gerð gjaldþrota. En af því leiðir, að verkamenn og sjómenn mundu tapa um 200 þús. kr. af ógreiddum vinnulaunum, og munu vera 80 þús. kr. af því fé, sem verkamenn og sjómenn hafa lagt fram sem hlutafjárframlag. Mér er sagt, að nálega allir sjómenn og verkamenn í Flatey séu hluthafar í öðru hvoru fyrirtækinu og margir í þeim báðum.
Það hafa að vísu heyrzt raddir um það, að við atvinnulífið í Flatey sé ekkert annað að gera en láta það veslast upp og flytja fólkið burtu úr eyjunni. Það er kannske úrræði út af fyrir sig. En ég tel, að þegar fólk á einhverjum stað er búið að leggja á sig annað eins og hér hefur verið gert og möguleikar til starfrækslu mannvirkja, sem þar er um að ræða, eru ekki lakari en gengur og gerist, þá sé ekki um neinn annan möguleika að ræða en að hjálpa fólkinu til að klífa örðugasta hjallann og veita því í því skyni nauðsynlega hjálp til þess að ljúka þessum mannvirkjum og hjálpa þeim til að greiða áfallnar skuldir — þ. e. því fólki, sem nú er allslaust, — og í þriðja lagi að hjálpa til þess, að hraðfrystihúsið, í þessu tilfelli, fái hráefni til þess að vinna úr og fólkið fái þannig atvinnu til þess að lifa af. Ég held, að það þurfi ekki mjög mikið fjármagn til þessa í þessu tilfelli, og ég tel, að vonir gætu staðið til þess, að það fjármagn skili sér kannske fljótlega aftur.
Ég vona, að hæstv. ríkisstjórn hafi nægilegan góðvilja til að bera til þess að þetta mál geti leystst, ef hæstv. Alþ. samþykkir þessar till., sem hér er um að ræða, og að hún hafi möguleika til þess að láta veita nauðsynlega aðstoð kostnaðarlega til þeirra Flateyinga.
Mér er sagt, að oddviti hreppsn. Flateyjarhrepps sé hér í borginni nú, til þess að reyna að fá lausn í þessum málum, og kaupfélagsstjórinn í Flatey sömuleiðis. Þannig er málunum fylgt eftir í sameiningu af verkalýðsfélaginu og forráðamönnum þess og hreppsn. í Flateyjarhreppi.
Enn vil ég segja það, að ég tel, að Flatey sé slíkt menningarsetur að fornu og nýju við Breiðafjörð, að það komi ekki til mála annað en það verði stuðlað að því, að sú byggð, sem þar er, geti haldizt og blómgazt. Og vissulega er nokkur nauðsyn til þess. Og ef Breiðafjarðareyjar verða nytjaðar og þau landgæði, sem þar eru, þá held ég, að nauðsynlegt sé, að miðstöð Breiðafjarðarbyggðar í eyjum verði í Flatey, þannig að byggð þar verði við haldið og hún efld.
Ég mælist til þess, að þessari till. verði vísað til hv. allshn. eða kannske öllu heldur til hv. fjvn. til athugunar, hvort sem hæstv. forseti ákveður að hafa tvær umr. um hana, sem ég tel vart þurfa, eða umr. verði frestað nú. Ég vil að síðustu þakka hæstv. forseta fyrir það, að hann tók málið svo skjótlega á dagskrá, eftir að það var fram komið. Það er að öllu eðlilegt og á þann veg, að ef á að veita þarna hjálp, þá þarf að veita hana fljótt, og það er aðalatriði málsins.