19.01.1951
Sameinað þing: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í D-deild Alþingistíðinda. (4209)
149. mál, atvinnulífið í Flatey á Breiðafirði
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég held nú, að hv. þm. hafi misskilið mína ræðu. Ég tók það einmitt fram, að ég væri ekki vanþakklátur honum fyrir, að hann hefði borið fram þessa till., og er ég þess fullviss, að erfitt er fyrir tilheyrendur að fá það út úr mínum orðum. En ég finn, að hv. flm. er mér reiður fyrir að hafa tekið þessu með prúðmennsku. Og ég sé nú, að fyrir honum hefur vakað með þessari till. að koma mér úr jafnvægi. En þetta hefur algerlega mistekizt. Og ég er honum þakklátur, — eins og öllum þm., sem veita Barðstrendingum lið hér á þingi — fyrir að reyna að koma þeim til hjálpar á Alþ. — Hv. þm. segist hafa hlustað á ævisögu mína hér áðan. En ég get sagt honum það, að hún hefur hvorki byrjað þar né mun enda þar heldur. Mér hefur þótt rétt að skýra frá staðreyndum í þessu máli, sem Alþýðublaðið hefur fundið hvöt hjá sér til þess að svívirða mig fyrir. En í þessu sambandi vil ég segja það, að ég met ekki blaðaslúður þessa snepils svo mikils, að mér finnist taka því að fara í blaðadeilur við þessa róna, — jafnvel þótt Hannibal stæði þar á bak við.
En það var ekki í sambandi við þetta, sem ég stóð upp, heldur vegna þess að ég vildi leiðrétta það, sem hv. flm. sagði, að Flateyingar hefðu verið hvattir til þess af opinberum aðilum að stækka frystihúsið. Þetta er ekki rétt. Ég vil benda honum á, að þessir menn voru svo bjartsýnir á sínum tíma um þetta mál, að þeim virtist engin ástæða til þess að hafa samráð við mig um það, og ég vildi ekki blanda mér í málið, til þess að tefja það ekki að óþörfu. Og ég veit, að þeir ágætismenn, sem stungu upp á því að stækka frystihúsið, gerðu það einungis í trausti þess, að áætlunin væri raunrétt, en ekki að það þyrfti að tvöfalda verðið, svo að kostnaður við byggingu hússins færi upp í 1.5 millj. kr. En ég er sannfærður um það, að þeir hefðu ekki hvatt Flateyinga til þess að stækka húsið, ef þeir hefðu vitað, að kostnaðurinn yrði hátt á aðra millj. kr.
Ég ætla svo ekki að draga þetta mál á langinn. Ég veit, að við fáum tækifæri til þess að ræða bæði þetta mál og önnur annars staðar.