31.01.1951
Sameinað þing: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í D-deild Alþingistíðinda. (4218)

152. mál, aðstoð til byggingar íbúða

Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Ég flyt á þskj. 494 till. til þál. um aðstoð til byggingar ódýrra leiguíbúða ásamt hv. þm. N-Þ. Till. er um það, að Alþingi skori á ríkisstj. að láta fara fram athugun á því, hvort heppilegt sé og á hvern hátt framkvæmanlegt að veita leigjendafélögum aðstoð til að koma upp ódýrum leiguíbúðum. Ástæðan fyrir flutningi till. er sú, að stjórn Leigjendafélags Reykjavíkur hefur hug á að koma upp ódýrum íbúðum, sem síðan er ætlunin að leigja út. Hér er um algert nýmæli að ræða og er talsverður vandi í sambandi við framkvæmd þessa, m. a. við útvegun lánsfjár til bygginganna. Í fylgiskjali frá L. R., sem prentað er með till., er rætt um þetta atriði, í 3., 4. og 5. gr., hvernig félagið hyggst standast kostnað við byggingar sínar, en nú á tímum er sá þátturinn vandasamastur í sambandi við byggingar.

Það mun ekki orka tvímælis, að slík starfsemi sem þessi á mikinn rétt á sér og einkum sökum þess, að margir hafa nú ekki tök á að leggja fram stofnfé til byggingar íbúðarhúsa sinna. Það er því full ástæða til að veita þessu máli fulla athygli, að aðstoða L. R. sem má til að leysa þetta mál. Ég vil því vænta þess, að till. þessi fái skjóta afgreiðslu hér á hv. Alþingi, og þó að nokkuð sé áliðið þings, að hún fái lokaafgreiðslu á þessu þingi. — Ég geri það svo að till. minni, að málinu verði að umræðu lokinni vísað til hv. allshn.