09.02.1951
Sameinað þing: 40. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í D-deild Alþingistíðinda. (4255)

174. mál, hafnargarðurinn í Dalvík

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Þar sem hv. fyrri flm. þessarar þáltill., hv. 1. þm. Eyf., er nú veikur, þá mun ég fylgja henni úr hlaði með fáeinum orðum, en get látið mér að mestu leyti nægja að vísa til ummæla hv. þm. Barð. um málið hér næst á undan, að spurning er, hvort þörf er á ályktun Alþ. í þessu efni, og hvort ekki er þegar heimild fyrir þessu í l. Ég hef rætt þetta við vitamálastjóra og hafnarmálastjóra, sem héldu, að slík heimild væri til, en hv. 1. flm. óskaði eftir, að þetta yrði lagt fyrir Alþ. Að öðru leyti skýrir grg. sig sjálf, og þarf ég því ekki að hafa fleiri orð um þetta, en legg til, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. fjvn.