22.02.1951
Sameinað þing: 45. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (4268)
178. mál, rekstur gömlu togaranna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Vegna ræðu og ummæla hv. 2. landsk. þm. um það að bjóða gömlu togurunum hið sama og vélbátunum, þykir mér rétt að taka fram, að ég ætla að bíða og vita, hvaða afstöðu flokkur hans tekur til þeirrar úrlausnar, sem vélbátaflotinn fékk. Ég ætla að vita, hversu hrifinn flokkur hans er af sjómannagjaldeyrinum, því að væntanlega fara umræður bráðum fram um það mál, og þá er hægt að dæma um þetta, hvort þetta er af heilindum mælt. — Þá vil ég benda á það, að það standa engar vonir til þess, að skipin fiski meira en 1500 tonn á ári, og kg er 1 króna, þá er þetta aldrei meira en 1½ millj. kr., og er þá alveg útilokað að gera út á þau kjör, aflinn þyrfti a. m. k. að tvöfaldast —, en þeir, sem flytja þessa till., kalla það kannske ekki mikið, þótt hallinn yrði svona mikill á rekstrinum. — Út af hinu atriðinu, um verksmiðjurnar, vil ég benda á það, að þær stóðu auðar í sumar vegna aðgerða þessara, og þær munu standa auðar, svo framarlega sem ráð þessara manna eru að einhverju ríkjandi í landinu, því að það er þeirra að sjá um, að svo sé einmitt.