08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í D-deild Alþingistíðinda. (4317)
64. mál, launalög
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Opinberir starfsmenn fá nú greiddan hluta launa sinna samkv. þál., samþykktri á s. l. vori. Því hlýtur óhjákvæmilega að fylgja nokkurt öryggisleysi að fá laun sín greidd samkv. þál., en ekki samkv. lögum. Í því skyni var skipuð nefnd til að athuga launalöggjöfina, og mun sú nefnd nú hafa lokið störfum. Hlýtur því ríkisstj. að hafa ákveðið, hvort laun skuli framvegis greidd samkv. gildandi fyrirkomulagi eða á öðrum grundvelli.