22.11.1950
Sameinað þing: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í D-deild Alþingistíðinda. (4334)

94. mál, Keflavíkurflugvöllur

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vil leiðrétta þennan skilning hjá hv. þm. Ég sagði aldrei, að ég væri allur af vilja gerður að svara þessu, — ég sagði, að það hlyti að fara eftir mati ráðh., hvaða fyrirspurnum hann teldi eðlilegt að svara, þegar þm. er veittur réttur til þess að bera fram hvaða fyrirspurnir sem er, hversu fráleitar sem þær eru.