29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í D-deild Alþingistíðinda. (4348)
108. mál, lýðveldisfáninn
Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans og lýsi ánægju minni yfir því að fáninn er vel varðveittur. En út af athugasemd hans vil ég taka það fram, að þessi fsp. var borin hér fram af gefnu tilefni. Það hafði verið spurzt fyrir um þennan fána í forsrn. og þau svör gefin þar, að rn. væri ekki kunnugt um, hvar hann væri geymdur; annars hefði þessi fsp. ekki verið borin fram hér.