29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (4358)
902. mál, soðkjarnaverksmiðja
Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Á síðasta Alþ. var samþ. frv. til l. um að reisa stöð til hagnýtingar efna úr síldarsoði, og var hæstv. ríkisstj. heimilað að taka 4 millj. kr. lán til byggingar stöðvarinnar. Það var upplýst, að um 20% meira verðmæti fengist úr hverju síldarmáli með því að hagnýta soðkjarnann heldur en ella og að ef soðvinnslustöð væri rekin hér, þá mundi hún, með núverandi markaðsverði, skila á tveimur árum þeim gjaldeyri, sem nauðsynlegur er vegna stofnkostnaðar stöðvarinnar, og að með 22 vinnslusólarhringum á ári fengist stöðin að fullu greidd á fimm árum.
Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh. um það, á hvaða stigi málið standi og hvort nokkur von er til þess, að þessi verksmiðja verði byggð í náinni framtíð, og hvort unnt sé að fá kostnað við byggingu hennar settan inn á Marshallaðstoðina.