29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (4368)

904. mál, viðskiptasamningar við Danmörku

Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Á síðasta þingi bar ég fram þáltill. á þskj. 765 um yfirfærslu á smávægilegri skuld við Danmörk og viðskiptasamninga milli ríkjanna. Þetta mál var borið svo seint fram, að það náði ekki afgreiðslu á þinginu, m. a. vegna þess, að ekki var vitað um þá erfiðleika, sem höfðu skapazt við vangreiðslu á skuld, sem Danir áttu hér í Íslandi. — Ég vildi spyrja hæstv. ráðh., hvort þessi skuld, sem Íslendingar stofnuðu til við Danmörku á s. l. ári, hafi verið yfirfærð. Í öðru lagi vildi ég spyrja, hvort gerðir hafi verið viðskiptasamningar milli Íslands og Danmerkur, og í þriðja lagi, hvernig viðskiptajöfnuðurinn er milli ríkjanna á þessu ári. Eftir að þessi þáltill. kom fram í fyrra, fékk ég margvíslega staðfest, að það átti mikinn hljómgrunn hjá þjóðinni að gera ekki viðskiptasamninga við Dani, nema það yrði Íslendingum hagstætt og unnið upp aftur það misrétti, sem hefur verið beitt í viðskiptum á undanförnum árum, m. a. á árinu 1949. Vildi ég því heyra frá hæstv. viðskmrh., hvernig hefur verið farið með þessi mál síðan, og vænti, að tekið verði tillit til þeirrar þáltill., sem borin hefur verið fram þessu að lútandi, þótt hún fengi ekki efnislega afgreiðslu.