02.03.1951
Neðri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (437)
Varamaður tekur þingsæti
forseti (SB) :
Svo hljóðandi bréf hefur mér borizt frá Lúðvík Jósefssyni, hv. 2. landsk. þm.:
„Reykjavík, 1. marz 1951.
Með því að ég verð að fara heim af þingi og vera fjarverandi næstu vikur sökum annríkis, óska ég þess, með skírskotun til 144. gr. l. nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður, Magnús Kjartansson ritstjóri, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“
Magnús Kjartansson hefur áður unnið drengskaparheit og tekur samkvæmt þessu sæti í hv. þingdeild.