06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (4386)
120. mál, virkjun Fossár í Fróðárhreppi
Landbrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn hef ég leitað umsagnar raforkumálastjóra, og hefur hann skrifað stutt bréf, sem ég vil leyfa mér að lesa:
„Sem svar við bréfi ráðuneytisins, þar sem umsagnar er óskað um fyrirspurnir Sigurðar Ágústssonar alþm. varðandi virkjun Fossár (þskj. 237), vil ég taka eftirfarandi fram: Spurningar nr. 1 og 2 eru það skyldar hvor annarri, að þeim verður bezt svarað báðum í einu. Lög nr. 92 frá 5. júní 1947 heimila ríkisstj. m. a. að fela rafmagnsveitum ríkisins að virkja 2400 hö. í Fossá við Ólafsvík og 1500 hö. í Gönguskarðsá við Sauðárkrók. Virkjun Gönguskarðsár var þegar hafin af Sauðkræklingum sjálfum, þegar lögin voru samþ., og nauðsynleg fjárfestingar- og gjaldeyrisleyfi þegar veitt. Héldu rafmagnsveiturnar þeirri virkjun áfram og luku við hana í árslok 1949. Um virkjun Fossár er það að segja, að þegar eftir að lögin voru samþ. var rafmagnsveitunum falið að vinna að því að koma virkjuninni upp. Rafmagnsveiturnar höfðu aflað tilboða í efni til virkjunarinnar og sóttu um nauðsynleg gjaldeyrisleyfi og fjárfestingarleyfi, en þessi leyfi fengust ekki. Var á það bent, að ætlunin væri, að raforkusjóður lánaði 1/3 af stofnkostnaðinum, sem mundi nægja fyrir helztu efniskaupum, og að reiknað væri með, að takast mætti að afla þess fjár, sem á vantaði, þannig að ljúka mætti virkjuninni á 2–3 árum. Árið 1948 var unnið áfram að þessum málum, en það fór á sömu leið, að framangreind leyfi fengust ekki. Þann 22. apríl 1949 tókst svo loks að fá fjárfestingarleyfi fyrir byrjunarframkvæmdum, og höfðu þá tilboð til virkjunarinnar nýlega verið endurnýjuð. Gjaldeyrisleyfi fengust hins vegar ekki fyrr en 16. júní, en þá var veitt 200 þús. kr. leyfi til þess að yfirfæra fyrstu greiðslur og festa pantanir. Var þá þegar túrbínan, rafallinn og trépípan pöntuð, og var ætlunin að panta rafbúnaðinn og stálpípuna skömmu síðar. Það kom hins vegar í ljós, að ekki var hægt að fá byrjunargreiðslurnar yfirfærðar, og því síður var talið fært að yfirfæra síðari greiðslur vegna þessara pantana, sem að upphæð námu rúmlega 1 millj. kr., miðað við fyrra gengi. Hefur ekki enn tekizt að fá byrjunargreiðslurnar yfirfærðar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Með tilliti til þessa pöntuðu rafmagnsveiturnar ekki rafbúnaðinn og stálpípuna og skrifuðu þeim firmum, sem þegar var búið að panta efni hjá, og tjáðu þeim aðstæður. Tókst að fá firmun til að falla frá kröfum sínum um yfirfærslur í bili, enda frestuðu þau smíði á vélunum, og síðar tókst enn fremur að fá firmun til þess að leyfa rafmagnsveitunum að afturkalla pantanirnar og panta minni vélar í staðinn, ef það hentaði betur.
Hvað þriðju og síðustu spurningunni viðvíkur, er enn allt í óvissu um, hvort takast megi að fá nauðsynleg leyfi og yfirfærslu á næsta ári. Verði hægt að ráðast í virkjunina, eru öll líkindi til, að hún verði minnkuð niður í 1200 hö., sumpart vegna þess, að vatnið í Fossá hefur reynzt minna en reiknað var með 1947, og sumpart af fjárhagslegum ástæðum (gengisfellingin og hækkað verðlag erlendis). Má búast við, að 1200 ha. virkjun ásamt línum til Ólafsvíkur og Sands kosti nú um 5 millj. kr.“
Þetta er alveg skýrt svar, eins og efni bréfsins ber með sér, en ég tel þó rétt að bæta því við, að þótt tekizt hefði að leggja þessa fjármuni í greiðslu á þeim raftækjum, sem pöntuð voru, þá er það vitað mál, að þarna hefði verið ráðizt í virkjun, sem á engan hátt var búið að tryggja peninga til að fullgera. Nú er farinn hver eyrir, sem rafmagnsveiturnar höfðu yfir að ráða, til þess að fullgera þær veitur, sem þegar var byrjað á. Ég er einn af þeim, sem er sammála hv. fyrirspyrjanda um það, að full þörf sé á því að taka til athugunar, hvernig hægt sé að ýta áfram smærri virkjunum, en það er að mínu viti ekki hægt, nema til þeirra sé veitt fé eða ríkið taki til þess lán erlendis.