06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í D-deild Alþingistíðinda. (4388)

120. mál, virkjun Fossár í Fróðárhreppi

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Það er atriði, sem hv. þm. Snæf. verður að gera sér ljóst, að þegar búið að veita peninga til einnar framkvæmdar, þá verða þeir peningar ekki notaðir til annars, og þó að fjárveitingar til Sogs og Laxár séu talsvert á þriðja hundrað milljóna, þá hygg ég, að þannig sé ástatt, að fullásett sé, nema tekin séu ný lán. Annars eru fullnægjandi svör í bréfinu til þess að útiloka framkvæmdirnar. Það er synjað um gjaldeyris- og fjárfestingarleyfi 1947 og 1948, veitt leyfi 1949, en þá eru engir peningar til. Þetta er nóg til þess að stöðva verkið. Ég bendi á það, að ég ætla að hv. þm. Snæf. hafi verið samþykkur virkjun Sogs og Laxár. Ef við viljum, að þessum virkjunum sé komið upp, verður að hafa samtök um það, að heimiluð sé lántaka, að öðrum kosti verður þeim ekki komið upp.

Ég er hins vegar reiðubúinn að taka upp samvinnu við hv. þm. um þetta atriði, ekki sízt þegar eins er ástatt um virkjun vestur í Strandasýslu, að ekki hefur fengizt fé til hennar, og er hún þó eina virkjunin utan Sogs og Laxár, þar sem hægt er að framleiða rafmagn í stórum stíl. En við verðum að gera okkur ljóst, að þetta er ekki hægt nema með láni. Það er ekki nóg að samþykkja framkvæmdirnar, heldur verður að gera þær mögulegar með öflun fjár erlendis.