06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (4389)
120. mál, virkjun Fossár í Fróðárhreppi
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins undirstrika, að það kom skýrt fram í bréfi raforkumálastjóra, að stjórnin hefur gert allt, sem í hennar valdi stóð, til þess að hrinda þessu máli í framkvæmd. Það var þegar er lögin voru samþykkt snúið að því að ljúka því, sem þegar var byrjað á. Þegar fjárfestingarleyfi fékkst 1949 fyrir virkjun Fossár, stóð á gjaldeyrisleyfi, og þegar það loksins fékkst, var enginn gjaldeyrir til. Þetta er saga fátæktarinnar í þessu landi, en slíkar eru staðreyndirnar í þessu máli.