06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í D-deild Alþingistíðinda. (4394)
907. mál, hvíldartími áhafna flugvéla
Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, svo langt sem þau ná. En ég hafði haldið, að möguleiki væri að setja reglur um þetta samkv. lögum frá 1929. En það er sem sagt brýn nauðsyn, að fastar reglur verði settar um þetta.