07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í D-deild Alþingistíðinda. (4421)
908. mál, Metzner og aðstoðarmaður hans
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hv. þm. V-Húnv. gaf hér upplýsingar um meðferð málsins í Ed. og sagði, að 2 þm. hafi setið hjá. Eru það einu afskiptin, sem ég hafði af málinu, og gerði ég svo hljóðandi grein fyrir atkv. mínu: „Ég tel þessi réttindi meira virði en svo, að verjandi sé að hafa þennan hátt á afgreiðslu málsins, og lítinn sóma Alþ. af þessari meðferð þess. Mun ég því sitja hjá við atkvgr.“ — Þykir mér rétt, að hér séu lesin þau einu ummæli, sem komu fram við atkvgr.