07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í D-deild Alþingistíðinda. (4428)
909. mál, vínveitingaleyfi lögreglustjórans í Reykjavík
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Það var minnzt lauslega á leyfisveitingar fyrir áfengi á þeim tíma, er ég mun hafa verið dómsmrh. Ég verð nú satt að segja að viðurkenna, að þær leyfisveitingar, sem fóru fram í minni ráðherratíð, voru framkvæmdar af viðkomandi embættismanni, og tel ég, að þar hafi verið farið eftir gömlum venjum, sem þá þegar höfðu skapazt. Ég hafði aldrei neina sérstaka ástæðu til að kynna mér þau mál, vegna þess að til mín komu engar kvartanir um slíkt. Ég hygg, að þá hafi verið venja að velta áfengisleyfi í veizlum, þar sem mætti fyrir fram ákveðinn mannfjöldi, en leyfi hafi ekki verið veitt til áfengisveitinga á almennum skemmtunum, þar sem seldur var inngangur. Mér þykir a. m. k. líklegt, ef sú regla hefði þá þegar skapazt, að þá hefði verið farið að kvarta undan því. Ég vil ekkert fullyrða um þetta, vegna þess að ég kynnti mér það ekki sérstaklega, og það gerði ég ekki vegna þess, að um það komu engar kvartanir. Ég gerði ráð fyrir, að þar væri farið eftir gömlum venjum og reglum, sem skapazt höfðu.
En á þessum síðustu tímum er það greinilegt, að upp hefur verið tekin ný regla um veitingaleyfi á skemmtunum, þar sem almenningi er seldur inngangur, en ekki verið fylgt gamla veizlufyrirkomulaginu, eins og t. d. þegar Árnesingafélagið eða Rangæingafélagið voru að halda sín mót. Það hygg ég að muni verða taldar skemmtanir, sem ekki eru haldnar í ágóðaskyni. Ég hygg, að sú athugun, sem hæstv. dómsmrh. er að gera á þessum málum, hljóti að sýna, að það er búið að taka upp víðtækari reglur en áður hafa gilt. Hvort þær eru meira í samræmi við gildandi lög, skal ég ekki um segja, en það er búið að opna dyrnar meira en áður. Nú hefur allshn. Sþ. einróma lagt til, að endurskoðun áfengislöggjafarinnar fari fram, og ég vil vænta þess, að hæstv. dómsmrh. dragi úr þessum víðtæku leyfisveitingum, unz sú athugun hefur farið fram. — Annars var ég annar þeirra nefndarmanna í allshn., sem greiddi atkvæði gegn því að senda meðmæli með áfengisveitingaleyfi á flugstöðinni í Keflavík, og ég gerði það á þeim grundvelli, að það sé þvert ofan í lög. Ég tel engri nefnd í Alþ. sæmandi að ráðleggja ríkisstj. að gera slíkt án lagaheimildar.
Það, sem freistað hefur íþróttafélaganna til að fara inn á þá mjög hæpnu braut, sem hér hefur verið talað um, er hinn geysilegi skemmtanaskattur, sem viðgengst hjá okkur. Hann er svo hár, að það er ekki hægt fyrir félögin að halda skemmtun, sem þau hafa nokkuð upp úr til sinna starfa. Það eru því einmitt Alþ. og ríkisstj., sem leiða félögin inn á þær brautir að nota áfengisveitingar til framdráttar, og það er fyrir neðan allar hellur. Ég er ekki að segja, að félögin í sjálfu sér selji áfengi sér til hagnaðar, en þau fá húsnæði lægra verði og njóta fleiri óbeinna hlunninda og hagnaðar af sölunni.